Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 verður kynnt á blaðamannafundi klukkan 9 í dag.
Stefnt er að hallalausum fjárlögum en Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir áætlað að afgangur verði upp á einhverja milljarða króna. Það gerði hann í Vikulokunum á laugardag þar sem fjárlögin, hagræðingaraðgerðir og fleira var til umræðu.
„Það hlaut alltaf að vera þannig að við þyrftum á einhverjum tímapunkti að fara yfir núllið og það erum við að gera.“
Alþingi verður sett á morgun, þriðjudag.
Upphaflega var stefnt að því að afgangur yrði um einn milljarður króna. Daði Már segir muninn ekki mikinn í samhengi við veltu ríkisins þó að upphæðin sé umtalsvert hærri.
„Þetta er búið að liggja fyrir í bæði fjármálaáætlun og fjármálastefnu þessarar ríkisstjórnar að á þessum tímapunkti færum við yfir núllið. Og það var alltaf gert ráð fyrir því að við værum býsna nálægt því, árið sem við förum yfir það,“ segir Daði Már.
„Allir sem hafa einhvern tímann þurft að herða sultarólina vita að það er mikill munur á því að eiga smá afgang eða vanta töluverða upphæð.“