Þrjú lík fundust í gær við leit í rústum húsa í bólivískri herstöð þar sem gríðarleg sprenging varð á föstudagskvöld að staðartíma. Varnarmálaráðuneyti Bólivíu segir vitað að sex hafi farist í sprengingunni, þar af minnst helmingur hermenn.
Ellefu er enn saknað, flestir ungir hermenn á aldrinum 18 til 19 ára. Hús nærri miðpunkti sprengingarinnar hrundu og grjót þeyttist í allar áttir, þök sviptust af byggingum sem fjær eru og tré rifnuðu upp með rótum.
Ráðuneytið hefur upplýst að sprengiefni af ýmsu tagi, sem gert hafði verið upptækt, var geymt í stöðinni, sem er í Viacha, hundrað þúsund manna borg í þrjátíu kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni La Paz.
Ástæður sprengingarinnar eru enn á huldu þótt saksóknari rannsaki málið sem manndráp. Evo Morales fyrrverandi forseti segir stjórn núverandi forseta Rodrigo Paz hafa sinnt málinu af ábyrgðarleysi sem ekkert sé nema stríðsglæpur og verðskuldi kvörtun til Alþjóðasakamáladómstólsins í Haag.