Hvassviðri er á Suðausturlandi þar sem vindur er að jafnaði 15 til 20 metrar á sekúndu og fer yfir 30 metra á sekúndu í hviðum á stöku stað. Veðurstofan biður fólk að hafa varann á, sérstaklega ef það er á farartækjum sem taka á sig mikinn vind. Gul viðvörun gildir til klukkan fjögur.
Talsvert rignir á Austfirðinga framan af degi en það dregur úr úrkomu síðdegis.
Annars staðar er rólegra veður.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Norðlæg átt, víða 8-13 metrar á sekúndu og skýjað með köflum eða léttskýjað suðvestan- og vestantil á landinu. Norðan 13-20 metrar á sekúndu suðaustan- og austantil og talsverð rigning á Austfjörðum, en dregur úr úrkomu síðdegis. Mun hægari vindur í kvöld og léttir til. Hiti 8 til 16 stig að deginum, hlýjast á Suðurlandi.
Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt á morgun og bjartviðri, en strekkingur norðvestan- og síðar norðanlands. Þykknar upp vestantil um kvöldið með smá rigningu eða súld. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast norðantil.