Talsverður viðbúnaður var á svæðinu og heyrðust sírenur óma víða um borgina. Ökumaðurinn var að lokum handtekinn en hann er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum. Eftirfarandi myndskeið af handtökunni er í töluverðri dreifingu á samfélagsmiðlum.
Hann gistir fangageymslur „þar til hann verður viðræðuhæfur“, líkt og lögregla orðaði það í tilkynningu. Mikil hætta hafi skapast og mesta mildi að enginn skyldi slasast.
Framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík segir að mál ökumanns sem keyrði á ofsahraða um götur borgarinnar í dag og keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar á meðan eftirför stóð yfir sé hjá lögreglu og fyrirtækið kanni næstu skref. Almennt sé ökumönnum sem brjóti reglur hiklaust meinað að nýta sér þjónustuna oftar.
Fréttin er í vinnslu.