Í dag afhenti Billy Long trúnaðarbréf sitt til Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, á Bessastöðum. Long hefur þar með hafið formlega starf sitt sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. „Ísland og Bandaríkin eiga sér langa sögu samstarfs, allt frá öryggis- og varnarmálum og viðskiptum til lista, bókmennta og landkönnunar,“ er haft eftir Long af þessu tilefni. „Ég hlakka til að vinna með íslensku þjóðinni að því að dýpka samstarf okkar og styrkja böndin milli þjóðanna tveggja.“
Long hefur afhent Höllu trúnaðarbréf sitt