Salvör Norðdal umboðsmaður barna segir ljóst að ekki sé farið eftir lögum um eftirlit með fósturbörnum. Hún segir gott og vel að hafa góðan lagaramma en að mikið sé að ef honum er ekki fylgt.
Nýlega kom út skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) um fósturheimili. Úttektin sem skýrslan byggir á var gerð eftir umfjöllun Kveiks um Bakkakotsmálið, þar sem kom í ljós að drengir sem dvöldu þar urðu fyrir ofbeldi af hálfu fósturforeldris. Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er að 46% fósturheimila hafi ekki tilskilin leyfi og að eftirlitsheimsóknum barnaverndar sé ábótavant.
Í barnaverndarlögum er gerð krafa um að eftirlit á fósturheimili fari að lágmarki fram tvisvar sinnum fyrsta árið sem barn er í fóstri og a.m.k. einu sinni á ári eftir það. Við yfirferð upplýsinga frá barnaverndarþjónustum mátti sjá í mörgum tilfellum veruleg frávik frá lágmarkskröfu um fjölda eftirlitsheimsókna og framkvæmd þeirra og mikill munur var á milli sveitarfélaga. Hlutfallið var áberandi lágt í Árborg, Grindavík, Reykjanesbæ, á Seltjarnarnesi og á Vestfjörðum.
Salvör segir að rýna þurfi í þetta misræmi.
Börnin vita ekki hvaða stuðningur er í boði
Í skýrslunni kemur einnig fram að meirihluti ungmenna sem eru eða hafa verið í fóstri upplifi takmörkuð tækifæri til raunverulegs einkasamtals og stuðnings.
„Börnin vita mörg hver ekki að þau geti kvartað,“ segir Salvör. „Þau vita ekki að þau hafi einhvern sem þau treysta til að tala við.“
Þá segir hún að börn séu oft ekki undirbúin fyrir breytingar, til dæmis þegar þau verða 18 ára. „Það er mjög brýnt að það sé talað við börnin og þau þekki sinn rétt.“
Margoft hafi verið bent á að gera þurfi betur í málefnum fósturbarna vegna hræðilegra mála sem hafi komið upp í kerfinu.
„Ef við lesum þessa skýrslu þá bendir ýmislegt til þess að það sé það sama upp á teningnum núna, að við séum ekki að framkvæma þetta eftirlit eins og ber að gera. Auðvitað vaknar þá sú spurning hvort það þurfi að hafa meira eftirlit með barnaverndarþjónustu, með því eftirliti sem henni ber að gera,“ segir Salvör.