Hjúkrunarheimilið Sóltún hefur skilað eigendum sínum miklum hagnaði og arðgreiðslum á undanförnum árum. Nú stendur yfir lögreglurannsókn sem tengist fjárreiðum og viðskiptum eigenda félagsins. Samkvæmt umfjöllun RÚV á rannsóknin rætur að rekja til innbyrðis deilna helstu eigenda. Jóhann Óli Guðmundsson kærði fyrrum viðskiptafélaga sína, þá Þóri Kjartansson og Arnar Þórisson.
Samantekt frá 2009
Nútíminn hefur undir höndum samantekt frá árinu 2009 sem varpar ljósi á upphaf deilna milli eigendanna. Á þeim tíma voru Jóhann Óli, Þórir og Arnar viðskiptafélagar og stóðu saman að uppbyggingu hjúkrunarheimilisins Sóltúns.
Verkefnið var meðal annars fjármagnað með aðkomu þýska bankans Depfa. Kaupþing gætti hagsmuna bankans auk þess sem lögmenn tengdir Lögmönnum Höfðabakka komu að málinu. Félagið sem átti Sóltún hét Öldungur.
Fyrir utan fasteignina sjálfa var verðmætasta eign Öldungs sérlega hagstæður þjónustusamningur við ríkið. Samkvæmt heimildum Nútímans fól samningurinn í sér hærri greiðslur til Sóltúns en almennt tíðkaðist gagnvart öðrum hjúkrunarheimilum. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir annarra rekstraraðila hefur ekkert annað hjúkrunarheimili fengið sambærilegan samning.
Endurfjármögnun og ágreiningur
Í samantektinni frá 2009 er því lýst hvernig Öldungur var endurfjármagnaður með láni frá Íslandsbanka. Í framhaldi var félagið selt nýju félagi, Íslenskri fjárfestingu, „fyrir óverulega fjárhæð“, samkvæmt samantektinni.
Þá er því einnig haldið fram í samantektinni að sérstakir samningar milli eigendanna hafi átt að tryggja Jóhanni Óla umtalsverðar greiðslur vegna viðskiptanna. Samkvæmt fréttum af kæru Jóhanns Óla telur hann sig síðar hafa verið hlunnfarinn af fyrrum viðskiptafélögum sínum og að ekki hafi verið staðið við gerða samninga.
Reyndu að selja öðrum reksturinn
Þórir og Arnar reyndu árið 2009 að fá aðra aðila til að taka yfir rekstur hjúkrunarheimilisins. Hugmyndin var að félagið Íslensk fjárfesting/Öldungur myndi áfram njóta tekna af hagstæðum samningi við ríkið á meðan annar aðili sæi um daglegan rekstur.
Samkvæmt samantektinni strönduðu viðræðurnar meðal annars vegna ágreinings um fjárhagsleg skilyrði og meintar kröfur um greiðslur utan hefðbundinna samninga.
Að lokum var ákveðið að eigendur Íslenskrar fjárfestingar/Öldungs sæju sjálfir um reksturinn. Reksturinn hefur síðan reynst afar arðsamur og skilað eigendum sínum yfir þremur milljörðum króna í hagnað samkvæmt opinberum ársreikningum. Afkoma Sóltúns hefur um árabil verið mun sterkari en hjá flestum öðrum hjúkrunarheimilum landsins, sem mörg hafa glímt við þröngan rekstur.
Sérstakur samningur rennur út
Á sama tíma og lögreglurannsókn stendur yfir á viðskiptum tengdum eigendum Sóltúns nálgast lok hins sérstaka þjónustusamnings heimilisins við ríkið. Samningurinn rennur út á næsta ári og hefur um langt skeið verið talinn lykilforsenda þeirrar miklu arðsemi sem reksturinn hefur skilað.