Lögregla boðar frekari upplýsingar eftir alvarlegt slys

Mynd: Víkingur
Alvarlegt umferðarslys varð á Krýsuvíkurvegi, við Bláfjallaveg, í nótt. RÚV greinir frá þessu.
Ásdís Haraldsdóttir, lögreglufulltrúi á lögreglustöð 2, sem sinnir verkefnum lögreglu í Hafnarfirði og Garðabæ, staðfestir að slysið hafi orðið en vildi ekki veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Ekki liggja því fyrir nánari upplýsingar um tildrög slyssins, fjölda þeirra sem lentu í því eða hvort og þá hversu alvarleg meiðsli urðu á fólki.
Að sögn Ásdísar er von á fréttatilkynningu frá lögreglu um slysið innan skamms þar sem búast má við frekari upplýsingum um málið.