Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Héraðsdómur Reykjaness féllst á varðhaldskröfu lögreglu á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Í tilkynningu lögreglu er málinu lýst sem „alvarlegu atviki í vesturbæ Kópavogs“ sem kom upp um hádegisbilið í gær.
„Þar leitaði karlmaður á sextugsaldri í bakarí í hverfinu illa á sig kominn, en hann var með skotsár,“ segir í tilkynningunni, en greint var frá því í gær að um bakaríið Brikk væri að ræða.
Fram kemur að maðurinn hafi verið fluttur á Landspítalann og gengist undir aðgerð í gær. Hann er ekki í lífshættu.
Lögreglan hafi verið með mikinn viðbúnað vegna málsins og hafi spjót hennar fljótlega beinst að íbúð skemmt frá bakaríinu. Þar fannst maðurinn sem nú hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.
„Lögreglan var með mikinn viðbúnað í ljósi alvarleika málsins, en böndin beindust fljótt að íbúð fjölbýlishúss steinsnar frá því þar sem slasaði maðurinn fannst. Þar innandyra var karlmaður um fertugt handtekinn í þágu rannsóknarinnar og færður á lögreglustöð.“ segir í tilkynningunni.
Lögreglan segir rannsókn málsins umfangsmikla, en að henni miði ágætlega. Hún hefur lagt hald á skotvopn, en rannsóknin beinist meðal annars að því hvort það hafi verið notað í málinu.
Fram kom í gær að við aðgerðirnar í gær naut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.