Með nýjum notendaskilmálum Meta áskilur fyrirtækið sér rétt til að safna og vista efni af vefjum sem tengdir eru fyrirtækjareikningum. Eins og þeir eru orðaðir getur Meta fært rök fyrir því að fyrirtækið geti notað efni af vefsíðum fyrirtækja, þar með talið fjölmiðla, til þess að þjálfa gervigreindartól.
Notendum eru ekki gefnar neinar leiðir til þess að mótmæla eða hafna skilmálunum heldur þurfa einfaldlega að hætta á miðlunum.
Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri fréttastofu Sýnar, segir þessar fyrirhuguðu breytingar enn eina áskorunina í breyttum heimi þar sem tæknirisar nýti sér frumunna vinnu til að þróa eigin vörur. Það sé áhyggjuefni.
Eðlilegt að greiða fyrir efnið
„Þarna er verið að segja að samþykki felist í því að gera ekki neitt. Þetta er kannski svolítið lýsandi líka fyrir það hvað það hefur lítið verið fjallað um þetta, ég held að fyrirtæki almennt séu ekkert meðvituð um þetta,“ segir Kolbeinn Tumi.
„Þetta snertir fjölmiðla sérstaklega illa þar sem er verið að frumvinna fréttir og vinna með mikinn texta, ekkert ósvipað og rithöfundar sem hafa verið að lenda í stappi við önnur fyrirtæki sem eru fremst í flokki þegar kemur að gervigreindinni.“
Eðlilegast væri að hans mati ef tæknirisar greiddu fjölmiðlum fyrir notkun efnisins.
Þá ættu blaðamenn að geta aukið tekjur sínar og fréttastofur að geta styrkt rekstur sinn til muna. Þetta ætti að vera tækifæri en ekki einhver ógn fyrir fjölmiðlana.
„Komdu með nestispeningana eða ég ber þig“
Á bilinu 3-5% af heimsóknum á Vísi séu í gegnum Facebook. Það sé ekki stór prósenta en þó það mikil að miðillinn vilji ekki verða af umferðinni.
Fram undan sé önnur breyting í farvatninu hjá Meta þar sem fyrirtækið hyggst rukka fyrir deilingar á Facebook. Kolbeinn segir það beint framhald af því að Meta hafi takmarkað sýnileika deilinga fjölmiðla á miðlinum undanfarin ár. Hann líkir breytingunum við einelti á skólalóð.
Ef þetta væri á skólalóð í Reykjavík þá væri þetta búllíismi þar sem einhver fer fram með valdi og offorsi. Eitthvað í áttina að: „Komdu með nestispeningana eða ég ber þig og það er lítið sem þú getur gert af því þú ert sex ára og hinn er 12 ára. Þannig að þetta er leiðinleg staða.
Íslenskir fjölmiðlar ræði stöðuna
Engin ákvörðun hafi verið tekin um næstu skref hjá Vísi enda þróist þessi mál á ógnarhraða á breyttum tímum. Miðillinn sé ekki beinlínis í stakk búinn til þess að takast á við fyrirtæki á borð við Meta fyrir dómstólum en fylgist með þróun erlendis svo sem málaferlum New York Times og fleiri gegn gervigreindarrisum.
„Þetta er allt saman stórfurðulegt og eitthvað sem við skoðum og vonandi koma íslenskir fjölmiðlar kannski saman til að til að ræða þessa stöðu sem er komin upp og hvernig sé eðlilegt að bregðast við.“