Lifði af bíl­slys en missti besta vin sinn - Vísir

Lifði af bíl­slys en missti besta vin sinn - Vísir

Lifði af bíl­slys en missti besta vin sinn - Vísir

Haraldur Már ræddi þessa lífsreynslu í Bítinu á Bylgjunni en hann opnaði sig um hana í Facebook-færslu í síðustu viku í tilefni af Gulum september sem er vitundarvakning um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir.

„Orð geta drepið..Í ljósi þess að gulur september er genginn í garð langaði mig að deila með ykkur minni reynslusögu sem ég hef aldrei opinberlega gert áður. Hugmyndin að þessum skrifum vaknaði eftir að ég hafði verið að lesa kommentakerfi samfélagsmiðla og fylgjast með umræðunni í kjölfar þeirra hræðilegu atburða sem hafa átt sér stað í umferðinni síðustu vikur og mánuði,“ sagði Haraldur í færslunni.

„Þetta var búið að blunda í manni í einhvern tímann, að vilja nýta þessa reynslu í eitthvað gott. En aldrei hefur maður haft kjarkinn í það,“ segir Haraldur Már í viðtali við Bítið á Bylgjunni í morgun.

Síðustu vikur og mánuði hafi orðið alvarleg slys og fólk látið lífið í umferðinni. Haraldur segir það hafa vakið ýmsar tilfinningar hjá honum, og þá sérstaklega „óþverrinn“ sem fólk lætur út úr sér á samfélagsmiðlum.

Fékk bílprófið fimm dögum fyrir slysið

Haraldur var sautján ára þegar slysið átti sér stað á Akranesi og var aðeins búinn að vera með bílprófið í fimm daga. 

„Við vorum þessir ódauðlegu sautján átján ára strákar,“ segir hann og að þeim hafi þótt spennandi að „skrensa“ en það hafi endað á húsvegg á Vesturgötu á Akranesi á 90 kílómetra hraða. Báðir hafi þeir slasast alvarlega og vinur hans, Þorvaldur Kristinn, dáið tíu dögum síðar. Þá átján ára gamall. 

Rannsóknarnefnd samgönguslysa lagði til eftir slysið að ökuleyfisaldur yrði hækkaður úr 17 í 18 ár. Það var þó ekki gert. Niðurstaða nefndarinnar um slysið var að vítaverður framúrakstur og of hraður akstur væru meðal orsaka auk þess sem hvorki bílstjóri né farþegi hafi verið spenntir í öryggisbelti.

„Þetta er allt í móðu, þessi tími,“ segir Haraldur og að það hafi þurft að segja honum nokkrum sinnum hvað hafi gerst.

Hann segir að á þessum tíma hafi samfélagsmiðlar ekki verið á þeim stað sem þeir eru í dag en Akranes sé lítið samfélag og þar geti verið mikil illkvitni í slúðri.

„Það voru einhverjir einstaklingar sem tóku mér ekki vel,“ segir hann og að fljótlega eftir að hann kom heim hafi hann heyrt að fólk væri að segja að þau hefðu frekar viljað að hann hefði dáið.

Í færslu sinni segir Haraldur frá því að reglulega hafi verið kallað á eftir honum úti á götu og að í eitt skipti hafi hann verið kallaður morðingi. Þó svo að það geti hafa verið sagt í hvatvísi hafi það haft veruleg áhrif á hann.

„Þetta er allt sem var í hausnum á mér nú þegar. Sektarkenndin var svakaleg,“ segir hann en í færslu sinni segir hann um þetta:

„Næstu dagar voru í mikilli móðu og í dag man ég eiginlega bara eftir einum degi í febrúar 2008. Dagurinn sem besti vinur minn dó. Sektarkenndin sem fylgdi sorginni var sterkari en allt sem til var og eina hugsunin sem komst í hausinn á mér næstu vikur og mánuði var að ég hafði drepið besta vin minn.“

Í Bítinu segir Haraldur að honum hafi boðist aðstoð en hann hafi ekki verið meðtækilegur fyrir henni til að byrja með. Hann segir að í dag hafi hann unnið úr þessu sorgarferli og viti nú að það geti hafist í reiði. Hann segir að á þessum tíma hafi hann reglulega upplifað að hann vildi ekki vera til og að Þorvaldur hefði lifað frekar en hann.

Fólk hugsi sig tvisvar um í athugasemdum

Hann hvetur því fólk til að hugsa sig tvisvar um áður en það skrifar athugasemdir við fréttir eða færslur þar sem fjallað er um alvarleg slys þar sem einhver lætur lífið, eins og gerðist á Krýsuvíkurvegi í síðasta mánuði. Þetta fjallaði Haraldur um í færslu sinni þar sem hann segir, til dæmis:

„Komment sem tekur nokkrar sekúndur að skrifa og þú ert jafnvel búinn að gleyma daginn eftir getur setið í annarri manneskju það sem eftir er ævinnar.“

Haraldur segir að eftir þetta hafi hann átt erfitt uppdráttar og hans bjargráð í þessu hafi verið að leita í vímuefni og „breytt ástand“ og eftir þetta hafi ástæðan fyrir notkuninni breyst.

„Bara nota til að gleyma og geta einhvern veginn lifað með sjálfum mér.“

Haraldur segist hafa sokkið djúpt í sína neyslu og hafi á einum tímapunkti ætlað að taka sitt eigið líf vegna gífurlegrar vanlíðanar.

„Ég var búinn að fá þessa staðfestingu frá samfélaginu að ég ætti ekki skilið að lifa, sem mér fannst sjálfum,“ segir Haraldur Már og að þetta hafi verið of mikið fyrir hann.

Náði að losa sig við sektarkenndina

Hann segir marga hafa staðið við bak hans eins og stoð og stytta. Móðir hans hafi átt mjög erfitt en staðið við bak hans hverja mínútu. Hann segir það hafa tekið mörg ár fyrir hann að komast á rétt ról. Hann hafi misst föður sinn 2019 og það hafi verið útslagið sem kastaði honum yfir brúnina. Eftir það hafi hann náð að verða edrú og hafi í fyrsta sinn náð að halda sér þannig í lengri tíma. Í dag sé hann búinn að vera edrú frá 2021 og þakkar tólf spora kerfinu fyrir það.

Haraldur segir að í litlu samfélagi þrífist stundum illkvittni og hann hafi fengið að finna fyrir því eftir slysið. Vísir/Vilhelm

Haraldur segist hafa náð að losa sig við sektarkenndina en viðurkennir að hann hefði aldrei getað losað sig við hana og náð bata án stuðnings móður og systur Þorvaldar. Hann segir sér verulega kært hversu vel þær tóku honum og það sé það sem hafi bjargað lífi hans.

Haraldur segir fólk „alveg glórulaust“ þegar það pikkað á lyklaborðið og segir eflaust fáa hugsa um aðstandendur þeirra sem slösuð eða látin eru. Þá segir hann hræðilegt að það sé verið að senda myndbönd á milli.

„Það er bara að hugsa sig tvisvar um áður en þú opnar munninn.“

Haraldur Már biðlar til ungra manna sem finnst gaman að spyrna og keyra hratt að næst þegar þeir gíra sig upp í hraðakstur að líta á manneskjuna við hlið sér og ímynda sér að þeir standi við kistuna hennar og eina hugsunin sem komist að sé að þeir hafi drepið hana.

„Ég hef þurft að lifa með þeirri hugsun og það er enginn hraði eða sigur í einhverri spyrnu eða adrenalín þess virði að þurfa að upplifa það,“ segir Haraldur og hvetur þau sem raunverulega hafa áhrif á hraðakstur að kynna sér akstursíþróttir. Þar sé hægt að gefa í við réttar aðstæður.

Haraldur segist hafa fengið gífurlega góð viðbrögð við færslu sinni. Það sé lyginni líkast og hann segist aldrei hafa átt von á svona mörgum skilaboðum. Fáir hafi raunverulega áttað sig á því hversu mikið áfall þetta var fyrir hann.

Hægt að snúa blaðinu við

Hann segir að í dag eigi hann yndislega unnustu og lifi frábæru lífi.

„Ef þú ert í þessum sporum, sem ég var í, með sjúkdóminn alkóhólisma, þá er það fyrsta sem þú þarft að gera að leita þér aðstoðar með það,“ segir Haraldur og að hann hafi farið í gegnum Tólf spora samtökin og fengið leiðsögn og eftir það fengið endurhæfingu og áfallameðferð.

„Síðan eru þetta bara endurtekningar sem þú þarft að gera á hverjum degi,“ segir hann og að það sem hjálpi honum mest sé þjónusta við annað fólk. Hann vinni nú á geðsviði Landspítalans og sé stuðningsforeldri sjö ára barns.

„Bara gera eitthvað góðverk á hverjum degi,“ segir hann og að það vanti samkennd og náungakærleika í samfélagið.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.

#besta #bílslys #lifði #missti #vin


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262934268d/lifdi-af-bilslys-en-missti-besta-vin-sinn

📰 Aðrar fréttir

Vikan á Instagram: „Tvær á dag kemur skapinu í lag“
📅 14.09.2026 👁️ 0
Vikan á Instagram: „Tvær á dag kemur skapinu í lag“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem...
Heldur sig til hlés og lifir skír­lífi - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Heldur sig til hlés og lifir skír­lífi - Vísir
Taylor skaust upp á stjörnuhimininn í raunveruleikaþáttunum Secret Lives of Mormon Wives og var svo valin til að vera Bachelorette í vinsælli samnefnd...
Haustið mætir á mið­viku­daginn - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Haustið mætir á mið­viku­daginn - Vísir
Á miðvikudag er nokkuð djúp lægð væntanleg upp að landinu. Talsverð rigning fylgir hvössum vindum úr austri og suðaustri og eiga íbúar á Suður- og Ves...
Ný gjöld kosta Þröst 120 þúsund á ári – „Það á ekki að refsa fólki fyrir að vera veikt“
📅 14.09.2026 👁️ 0
Ný gjöld kosta Þröst 120 þúsund á ári – „Það á ekki að refsa fólki fyrir að vera veikt“
Þröstur Árnason gagnrýnir harðlega auknar fjárhagslegar byrðar sem lagðar eru á fólk sem glímir við alvarleg veikindi og þarf á reglulegri endurhæfing...
Bana­maður Bryn­dísar Klöru kominn á Vernd - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Bana­maður Bryn­dísar Klöru kominn á Vernd - Vísir
Árásarmaðurinn er nú átján ára gamall en hann var sextán ára þegar hann framdi árásina og sautján ára þegar hann hlaut dóminn í apríl í fyrra. Samkvæm...
Flugvirkjar ósáttir við yfirlýsingar Boga
📅 14.09.2026 👁️ 0
Flugvirkjar ósáttir við yfirlýsingar Boga
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands og samninganefndar félagsins, segir ummæli Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, vegna atkvæða...
Lýsa von­brigðum með fram­göngu Icelandair í miðri at­kvæða­greiðslu - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Lýsa von­brigðum með fram­göngu Icelandair í miðri at­kvæða­greiðslu - Vísir
Atkvæðagreiðslu félagsmanna Flugvirkjafélags Íslands sem starfa hjá Icelandair um vinnustöðvanir lýkur á hádegi en hún hófst á föstudag. Um helgina sa...
Vala Matt kom heljarinnar bú­slóð fyrir í sex­tíu fer­metra í­búð - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Vala Matt kom heljarinnar bú­slóð fyrir í sex­tíu fer­metra í­búð - Vísir
Þá bjó Vala á Ásvallagötunni í 60 fermetra íbúð en þá má með sanni segja að hún hafi hugað að hverjum millimetra í eigninni.  Með alls konar trixum ko...
Guðmundur Felix sýnir nefið eftir aðgerðina: „Þetta lítur dálítið út eins og tómur bílskúr“
📅 14.09.2026 👁️ 0
Guðmundur Felix sýnir nefið eftir aðgerðina: „Þetta lítur dálítið út eins og tómur bílskúr“
Guðmundur Felix Grétarsson hefur birt nýtt myndband sem sýnir nefið hans lítur út eftir aðgerðina í ágúst þar sem krabbamein var fjarlægt. Líkt og fja...
Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka - Vísir
Ekki stendur til að koma fyrir kjarnorkuvopnum í Finnlandi, á friðartímum, samkvæmt yfirlýsingu frá Alexander Stubb, forseta Finnlands. Auk Finna hafa...
Tveir hópferðabílar skullu saman á Suður­lands­braut - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Tveir hópferðabílar skullu saman á Suður­lands­braut - Vísir
Tveir hópferðabílar skullu saman við gatnamót Suðurlandsbrautar og Reykjavegar sem leiðir inn í Laugardal. Atvikið átti sér stað rétt fyrir klukkan tí...
Simmi Vill hugsi eftir að hafa séð YouTube-auglýsingu á skjánum hjá syni sínum - Ráðherra tók undir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Simmi Vill hugsi eftir að hafa séð YouTube-auglýsingu á skjánum hjá syni sínum - Ráðherra tók undir
Sigmar Vilhjálmsson, athafnamaður og fjölmiðlamaður, veltir því upp hvort opinberar stofnanir ættu að beina auglýsingafé sínu í auknum mæli til íslens...
Hrafn missti 21 árs dóttur sína úr krabbameini – Sannfærður um hvað olli veikindunum
📅 14.09.2026 👁️ 0
Hrafn missti 21 árs dóttur sína úr krabbameini – Sannfærður um hvað olli veikindunum
Hrafn Margeirsson segir frá því hvernig hann missti 21 árs gamla dóttur sína úr krabbameini aðeins þremur mánuðum eftir að sjúkdómurinn greindist. Han...
Talinn hafa geymt lík for­eldra sinna í frysti í þrjá­tíu ár - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Talinn hafa geymt lík for­eldra sinna í frysti í þrjá­tíu ár - Vísir
Málið kom fyrst upp þegar starfsmenn í kirkjugarði í Turku, hafnarborg á vesturströnd Finnlands, tóku eftir manninum og yngri bróður hans þar sem þeir...
Frakkar og Litáar endur­skoða Ríkis­endur­skoðun - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Frakkar og Litáar endur­skoða Ríkis­endur­skoðun - Vísir
Í tilkynningu þess efnis segir að viljayfirlýsing um úttektina hafi nýlega verið undirrituð af æðstu yfirmönnum embættanna, þeim Guðmundi B. Helgasyni...
Magdalena Andersson líklega forsætisráðherra að nýju – Hver er hún?
📅 14.09.2026 👁️ 0
Magdalena Andersson líklega forsætisráðherra að nýju – Hver er hún?
Allt bendir til þess að Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, endurheimti sæti sitt sem leið...
Það sem stjörnurnar hafa sagt um Ozempic: „Þetta er ógnvekjandi“
📅 14.09.2026 👁️ 1
Það sem stjörnurnar hafa sagt um Ozempic: „Þetta er ógnvekjandi“
GLP-1 lyf á borð við Ozempic og Wegovy hafa verið mikið til umræðu síðastliðin ár. Stjörnurnar hafa verið duglegar að nota lyfið en kannski ekki alveg...
Stoltir Íslendingar
📅 14.09.2026 👁️ 1
Stoltir Íslendingar
Stoltir Íslendingar „Ég er ótrú­lega stolt af sjálf­stæði Ís­lands og þeim ár­angri sem við höf­um náð sam­an sem þjóð.“ „Það er engin þörf á að laga ...
Árás til að hræða Vesturlönd
📅 14.09.2026 👁️ 1
Árás til að hræða Vesturlönd
Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, segir að árás Rússa á lest nærri landamærum Póllands og Úkraínu hafi verið tilraun til að hræða Ve...
„Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla Eng­land“ - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
„Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla Eng­land“ - Vísir
Þetta segir Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur í samtali við Bítið um sögulegan fund þjóðarleiðtoga Skotlands, Wales og Norður-Írlands sem stendur n...
Krefjast skýringa vegna útilokunar frá fundi
📅 14.09.2026 👁️ 1
Krefjast skýringa vegna útilokunar frá fundi
Írönsk stjórnvöld kröfðust í dag útskýringa frá austurrískum stjórnvöldum vegna ákvörðunar þeirra um að hleypa yfirmanni kjarnorkumála ekki inn í land...
Leita 129 manns eftir að ferju hvolfi við Indónesíu - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Leita 129 manns eftir að ferju hvolfi við Indónesíu - Vísir
Í frétt AP kemur fram að skipstjórinn hafi greint frá því að öldur hafi verið allt að þriggja metra háar áður en hann sendi út neyðarkall. Síðar hafi ...
Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu - Vísir
Í frétt AP kemur fram að skipstjórinn hafi greint frá því að öldur hafi verið allt að þriggja metra háar áður en hann sendi út neyðarkall. Síðar hafi ...
Vilja að það verði erfiðara að verða Íslendingur
📅 14.09.2026 👁️ 1
Vilja að það verði erfiðara að verða Íslendingur
Þingflokkur Miðflokksins hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að dómsmálaráðherra verði falið að herða skilyrði sem innflytjendur þurfa ...
Jón Birgir Jónsson ráðinn forstjóri Kviku banka
📅 14.09.2026 👁️ 1
Jón Birgir Jónsson ráðinn forstjóri Kviku banka
Stjórn Kviku banka hefur ráðið Jón Birgi Jónsson sem forstjóra bankans. Jón Birgir mun hefja störf þann 1. desember næstkomandi og tekur þá við af Árm...
Nýtur miklu meira trausts en mamma sín
📅 14.09.2026 👁️ 1
Nýtur miklu meira trausts en mamma sín
Ingiríður Alexandra krónprinsessa Noregs nýtur mikils trausts meðal landa sinna og raunar er traustið hennar í garð miklu meira en þjóðin hefur til mó...
Stjórnin lík­lega fallin en staðan afar þröng - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Stjórnin lík­lega fallin en staðan afar þröng - Vísir
Fádæma spenna var þegar talning atkvæða í sænsku þingkosningunum hófst í gær. Fljótlega varð ljóst að munurinn á milli hægri blokkar ríkisstjórnarinna...
Rúmin of stutt og herbergin of fá
📅 14.09.2026 👁️ 1
Rúmin of stutt og herbergin of fá
Gistiaðstaðan sem er ætluð íþróttamönnum á Asíuleikunum sætir mikilli gagnrýni forsvarsmanna sumra þeirra ríkja sem taka þátt. Keppni hefst í þessari ...
Rigning norðarlands en að mestu þurrt annars staðar - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Rigning norðarlands en að mestu þurrt annars staðar - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar segir að það verði dálítil rigning norðanlands og þokusúld en að það ætti að haldast að mestu þurrt í öðru...
Rigning á Norður­landi en að mestu þurrt annars staðar - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Rigning á Norður­landi en að mestu þurrt annars staðar - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar segir að það verði dálítil rigning á Norðurlandi og þokusúld en að það ætti að haldast að mestu þurrt í öð...
British tourists continue to dominate Canary Islands holiday market
📅 14.09.2026 👁️ 1
British tourists continue to dominate Canary Islands holiday market
British tourists continue to dominate the Canary Islands’ tourism industry, with the latest official figures showing that 576,338 visitors from the Br...
Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í út­löndum - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í út­löndum - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Miami minningar Hlaðvarpsstýran og áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaug...
Lýsa yfir miklum vonbrigðum með Vegagerðina - „Eðlileg krafa að samskiptin gangi í báðar áttir“
📅 14.09.2026 👁️ 1
Lýsa yfir miklum vonbrigðum með Vegagerðina - „Eðlileg krafa að samskiptin gangi í báðar áttir“
Byggðaráð Langanesbyggðar lýsir yfir miklum vonbrigðum með framgöngu Vegagerðarinnar. Segir byggðaráð að sveitarfélagið hafi ekki verið upplýst um að ...
Hákarl réðst á brimbrettakappa
📅 14.09.2026 👁️ 1
Hákarl réðst á brimbrettakappa
Hákarl réðst á brimbrettakappa á sextugsaldri í sjónum nærri Glenfield-strönd í vestur Ástralíu í gær. Maðurinn var fluttur í skyndi á spítala eftir á...
Dagamunur í veðrinu
📅 14.09.2026 👁️ 1
Dagamunur í veðrinu
Landsmenn geta búist við nokkrum umhleypingum í veðri næstu daga. Í dag verður þurrt að kalla víðast nema norðanlands, á Austurlandi og suðaustanlands...
Tollum hótað vegna hval­veiða sem verða bannaðar - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Tollum hótað vegna hval­veiða sem verða bannaðar - Vísir
Í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er boðað að frumvarp um breytingar á lögum um hvalveiðar verði lagt fram í febrúar. Byggt verður á skýrslu um lagaum...
Driver who smashed into TF-1 bus stop was more than three times over drink-drive limit
📅 14.09.2026 👁️ 1
Driver who smashed into TF-1 bus stop was more than three times over drink-drive limit
A reckless driver whose car left the TF-1 motorway and smashed into a bus stop in the south of Tenerife is being investigated after a breathalyser tes...
John­son rétt slapp við á­rás Rússa - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
John­son rétt slapp við á­rás Rússa - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá en í frétt miðilsins segir að dróninn hafi hæft vélarrými lestarinnar en samkvæmt tilkynningu úkraínskra stjórnvalda ...
Út­kall vegna hópslags­mála í bíla­kjallara - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Út­kall vegna hópslags­mála í bíla­kjallara - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar en þar segir að lögreglan hafi farið á staðinn eftir að tilkynning um hópslagsmálin barst. Um var að ræða útkal...
Are two-seat ‘mobility scooters’ rented to tourists actually legal in the Canary Islands?
📅 14.09.2026 👁️ 1
Are two-seat ‘mobility scooters’ rented to tourists actually legal in the Canary Islands?
Two-seat electric “mobility scooters” have become a familiar sight in tourist resorts across the Canary Islands, allowing couples to travel together a...
Umhverfismál gætu orðið bitbein á þingi
📅 14.09.2026 👁️ 1
Umhverfismál gætu orðið bitbein á þingi
Umhverfismál gætu orðið bitbein á þingi Um­hverf­is­ráð­herra mun mæla fyr­ir ETS2-kerfi sem los­un­ar­heim­ild­ar­kerfi fyr­ir bygg­ing­ar, vega­sam­...
Búið að telja 94% atkvæða
📅 14.09.2026 👁️ 1
Búið að telja 94% atkvæða
Rauða blokkin í Svíþjóð leiðir með þremur þingmönnum, 176 gegn 173 þingmönnum bláu borgaralegu blokkarinnar. Alls er búið að telja 94% atkvæða í þingk...
Búið að telja 94% atkvæða en of snemmt að skera úr um hver vinnur
📅 14.09.2026 👁️ 1
Búið að telja 94% atkvæða en of snemmt að skera úr um hver vinnur
Rauðgræna blokkin í Svíþjóð leiðir með þremur þingmönnum, 176 gegn 173 þingmönnum blágulu borgaralegu blokkarinnar. Alls er búið að telja 94% atkvæða ...
Búið að telja 94% en of snemmt að skera úr um hver vinnur
📅 14.09.2026 👁️ 1
Búið að telja 94% en of snemmt að skera úr um hver vinnur
Rauðgræna blokkin í Svíþjóð leiðir með þremur þingmönnum, 176 gegn 173 þingmönnum blágulu borgaralegu blokkarinnar. Alls er búið að kynna niðurstöður ...
Rússnesk drónaárás nærri lest með evrópskum diplómötum
📅 14.09.2026 👁️ 1
Rússnesk drónaárás nærri lest með evrópskum diplómötum
Stjórnvöld í Póllandi og Úkraínu fordæma árás sem Rússar gerðu á lest nærri landamærunum milli Póllands og Úkraínu í gærmorgun. Lestin var Úkraínumegi...
Tilkynnt um hópslagsmál í bílakjallara
📅 14.09.2026 👁️ 2
Tilkynnt um hópslagsmál í bílakjallara
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um hópslagsmál í bílakjallara í gær eða nótt samkvæmt dagbók lögreglunnar.Flestir voru farnir þegar lö...
Peers to debate donations law changes after Reform's £72m windfall
📅 14.09.2026 👁️ 2
Peers to debate donations law changes after Reform's £72m windfall
The government is seeking to change the law on donations to UK political parties from British expats.
Select committee calls for bill to address AI threat to human rights
📅 14.09.2026 👁️ 0
Select committee calls for bill to address AI threat to human rights
A cross-party group of MPs and peers identifies human rights risks that existing laws appear not to cover.
MPs and Lords call for new law to address AI threat to human rights
📅 14.09.2026 👁️ 1
MPs and Lords call for new law to address AI threat to human rights
Existing laws are not equipped to address the risks to human rights being posed by artificial intelligence, UK politicians say.
Trump lagði til sameiningu með Norður-Írlandi
📅 14.09.2026 👁️ 2
Trump lagði til sameiningu með Norður-Írlandi
Donald Trump forseti Bandaríkjanna lauk tveggja daga heimsókn til Írlands í dag. Heimsókninni var mótmælt víða.Trump fékk móttökur eins og þjóðhöfðing...