Hrafn Margeirsson segir frá því hvernig hann missti 21 árs gamla dóttur sína úr krabbameini aðeins þremur mánuðum eftir að sjúkdómurinn greindist. Hann segir fráfall hennar hafa verið stærsta áfall lífs síns og að í kjölfarið hafi hann lagt af stað í leit að skýringum á því hvers vegna sjúkdómurinn hafi þróast með jafn miklum hraða og raun bar vitni.Hrafn, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segist í dag sannfærður um að Covid-bólusetning hafi átt þátt í veikindum dóttur sinnar.
Hrafn missti 21 árs dóttur sína úr krabbameini – Sannfærður um hvað olli veikindunum