Sigmar Vilhjálmsson, athafnamaður og fjölmiðlamaður, veltir því upp hvort opinberar stofnanir ættu að beina auglýsingafé sínu í auknum mæli til íslenskra fjölmiðla í stað erlendra tæknirisa.Kveikjan að vangaveltunum var auglýsing frá Þjóðleikhúsinu sem birtist á YouTube þegar sonur Sigmars var að horfa þar á myndbönd.„Sonur minn var að horfa á YouTube þegar upp kom auglýsing frá Þjóðleikhúsinu. Ég varð forvitinn og kíkti aðeins nánar og sé að Þjóðleikhúsið er að auglýsa töluvert á Meta og Google,“ skrifar Sigmar.
Simmi Vill hugsi eftir að hafa séð YouTube-auglýsingu á skjánum hjá syni sínum - Ráðherra tók undir