Björgunarsveitin Ægir í Garði setti nýverið húsnæði sitt í Þorsteinsbúð á sölu. Húsið fékk björgunarsveitin að gjöf fyrir um 30 árum síðan frá ábúendum á Gauksstöðum í Garði og útgerðarmanninum Þorsteini Jóhannssyni.
„Sem var mjög hliðhollur sveitinni og var formaður hennar í mörg ár,“ segir Ingólfur Einar Sigurjónsson formaður Ægis.
Hann segir stöðu sveitarinnar almennt góða en viðhald á húsnæðinu sé bæði tímafrekt og kosti mikla peninga enda hátt í 2.000 fermetrar. Húsnæðið hafi skipt sköpum í starfi sveitarinnar í gegnum árin en nauðsynlegt sé að skoða alla möguleika.
„Við sjáum bara fram á það að ef við höldum þessu áfram erum við ekki að fara að ná í skottið á okkur með því að veita húsinu það viðhald sem það þarf,“ segir Ingólfur.
„Tekjur okkar og sjálfboðaliða eru bara ekki nægilegar þannig að við séum sáttir með þær framkvæmdir sem þarf að gera.“
Framtíð sveitarinnar ekki í hættu
Ástand húsnæðisins er að sögn Ingólfs ágætt en um sé að ræða nokkrar byggingar sem byggðar voru yfir langt tímabil. „Við erum að hugsa til framtíðar og bera okkur saman við fortíðina. Síðustu 10 ár hefur farið mikill tími og fjármunir í húsnæðið,“ segir hann.
Björgunarsveitin tilkynnti söluna á Facebook-síðu sinni um helgina og segir þar að skoðað hafi verið meðal annars að leigja út hluta hússins. Hins vegar sé niðurstaðan að best sé að selja húsið í heild sinni.
„Ekki værum við að fara vel með það sem okkur er gefið ef við myndum láta fermetraverðið grotna niður í höndunum á okkur,“ segir Ingólfur sem segir framtíð björgunarsveitarinnar ekki í hættu.
„Sveitin er ekki að leggjast af og við myndum þá koma okkur fyrir í hentugra húsnæði,“ segir Ingólfur. „Eins og staðan er í dag er reksturinn okkar í fínum málum, þetta er ekki þannig að við séum á flæðiskeri staddir en þetta snýst bara um ábyrgð, það er það sem stjórnin og sveitin eru að reyna að gera.“
Húsnæðið var sett á sölu stuttu fyrir helgi og segir Ingólfur að enginn hafi enn lýst yfir áhuga á að kaupa það.