Maðurinn sem banaði Bryndísi Klöru Birgisdóttur og stakk tvö önnur ungmenni á Menningarnótt fyrir tveimur árum er nú kominn af Stuðlum og afplánar nú á áfangaheimilinu Vernd í Laugardal í Reykjavík. Vísir greinir frá þessu en maðurinn var dæmdur í átta ára fangelsi í fyrra. Árásin átti sér stað á menningarnótt 24. ágúst 2024. Bryndís Klara lést á sjúkrahúsi 30. ágúst. Samkvæmt upplýsingum Vísis hóf maðurinn afplánunina á Vernd nú í byrjun september, rúmum tveimur árum frá atburðunum.
Kominn á Vernd tveimur árum eftir að hann banaði Bryndísi Klöru