Lögreglan á Suðurlandi leitar breskra hjóna sem grunuð eru um að hafa skilið barn eftir í bíl meðan þau fóru í göngu við Eldgjá í Vestur-Skaftafellssýslu gær.
Íris Edda Heimisdóttir aðalvarðstjóri segir að lögreglu hafi borist tilkynning um málið í gær og að hún vinni í að hafa uppi á fólkinu.
Kona sagði frá því á Facebook í gær að hjón frá Lundúnum í Bretlandi hefðu komið í Eldgjá með fimm ára dreng með sér. Þau hafi skilið barnið eitt eftir í bílnum meðan þau gengu að Ófærufossi. Konan segir drenginn hafa fundist grátandi á bílaplaninu við ána og hún hafi tekið hann inn og róað hann.
Foreldrarnir hafi á endanum fundist og faðirinn hafi sagt við konuna að þau hjónin gerðu þetta oft án vandræða. Síðan hafi þau brunað í burtu með drenginn.
Íris Edda segir lögreglu líta málið alvarlegum augum. Hún vinni að því í samstarfi við önnur lögregluembætti að hafa uppi á fólkinu og viti hvernig ökutæki þau séu á.
Hjónin séu grunuð um barnaverndarlagabrot, miðað við hvernig tilkynningin um málið hafi hljómað. Íris segir lögreglu vinna að því að sýna fram á það og ræða við alla hluteigandi.