Það eru ekki allir hrifnir af því þegar Elli kerling bankar á dyrnar, þó svo að það þýði að einstaklingi hafi lánast að lifa nógu lengi til að fá þann gest í heimsókn, en ekki eru allir það lánsamir. Það getur þó verið sárt þegar aðrir taka það að sér að gagnrýna fólk fyrir það að eldast og fáir verða meira fyrir barðinu á slíku en þeir sem hafa verið þekktir fyrir að vera ungir og fallegir.
Hin breska Rachel Ward er 68 ára og starfaði á árum áður sem fyrirsæta og leikkona. Henni þykir galið að fólk sé að gagnrýna hana fyrir það að eldast eftir að hún birti myndband af sér ófarðaðri á Instagram.
Fréttamiðlar skrifðu fréttir um að leikkonan væri óþekkjanleg og netverjar skrifuðu rætnar athugasemdir á borð við: „Guð minn góður? Hvað í fjandanum kom fyrir hana?“ eða „Vá, hún hefur elst virkilega, virkilega illa.“
Ward ákvað að snúa vörn í sókn og svaraði netverjum fullum hálsi í viðtali hjá ABC News.
„Mér er orðið slétt sama hvað fólki finnst um útlit eða aldur annarra. Af hverju finnst fólki að við ættum enn að vera að þykjast vera fertug þegar við erum 68 ára?“
Fyrrum leikkona býr með eiginmanni sínum til rúmlega fjögurra áratuga á sveitabæ í Ástralíu. Þau eiga saman þrjú uppkomin börn. Ward rifjar í viðtalinu upp hvernig hún var alin upp við það að útlit kvenna væri þeirra mikilvægasta eign. Faðir hennar lagði mikla áherslu á útlitið.
„Hvers vegna þarftu að mennta þig? Þú ert nógu hugguleg til að giftast einhverjum mjög ríkum,“ sagði faðir hennar.
Ward hóf feril sinn sem fyrirsæta en sneri sér svo að leiklistinni. Hún segist hafa orðið fyrir vonbrigðum þegar hún uppgötvaði hvað konur voru kyngerðar í Hollywood.
„Þú varst í raun einskis virði nema hvað varðaði kynþokkann þinn.“
Nú er Ward orðin það gömul að hún spáir ekkert í útlitinu og lætur sér fátt um finnast þegar fólk hæðist að henni.
„Nokkur nettröll fengu áfall yfir gráa hárinu mínu, en þessir aðilar hafa kannski ekki séð mig síðan ég var 24 ára og segja: Guð minn góður.“
Það hafi lengi verið svo að konur máttu ekki fá hrukkur, máttu ekki vera með grátt hár og umfram allt mátti þeim ekki standa á sama um slíkt.
„Þessi gamla tugga um að við þurfum enn að vera kynverur er ógnvekjandi. Að láta lyfta á okkur bossanum og lyfta brjóstunum og strekkja á andlitunum. Þetta verður bara fáránlegt.“
Ward skrifaði á Instagram í byrjun árs að hún hefði aldrei verið lukkulegri en þegar hún komst á sjötugsaldurinn. Hún segist ekki sakna þess að vera ung og hugguleg.
„Ekki óttast það að eldast. Þetta er dásamlegt tímabil í lífinu.“