Leigusalinn lenti í leigjanda úr helvíti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Meðal verkefna var árás með slökkvitæki, nokkur mál vegna gruns um akstur undir áhrifum og innbrot á kaffihúsi.
Alvarlegasta málið laut að árás á mann sem staddur var í bifreið. Samkvæmt dagbók lögreglu réðst maður á annan mann í bifreið með slökkvitæki. Hann braut rúður í bifreiðinni með slökkvitækinu og kastaði því síðan í ökumanninn.
Árásarmaðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.
Fjórir ökumenn voru jafnframt handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum. Einn var grunaður um akstur undir áhrifum bæði áfengis og fíkniefna, tveir um ölvunarakstur og einn um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra sem grunaður var um ölvunarakstur hafði verið sviptur ökuréttindum. Ökumennirnir voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.
Þá var tilkynnt um innbrot á kaffihúsi. Meintur innbrotsþjófur var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að garði og er málið í rannsókn. Einnig var tilkynnt um þjófnað í fataverslun.
Lögregla var kölluð að íbúð þar sem leigusali átti í vandræðum með að koma leigutaka út, en samkvæmt dagbókinni hafði leigutakinn haft í hótunum við leigusalann.
Á veitingastað þurfti einnig að kalla eftir aðstoð lögreglu vegna viðskiptavinar sem hafði pantað sér mat og drykk en gat ekki greitt reikninginn. Málið var afgreitt með vettvangsskýrslu.
Meðal annarra verkefna var útkall vegna innbrotskerfis í fyrirtæki, en enginn fannst á vettvangi og engin merki voru um innbrot. Þá var lögreglu tilkynnt um tónlistarhávaða og var húsráðandi beðinn um að lækka í tónlistinni.