Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar var flutt í lögreglufylgd frá Strandgötu á Akureyri yfir í Jólagarðinn í Eyjafjarðarsveit í kvöld. Stöðva þurfti umferð á meðan flutningnum stóð vegna breiddar hússins.
Leigubílastöðin var auglýst gefins gegn því að vera sótt, eftir að bærinn hafði betur í langdreginni deilu um lóðina við Hofsbót.