„Ef þetta gengur upp þá verð ég voðalega glaður,“ segir Benedikt Ingi Grétarsson, eigandi Jólagarðsins.
Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar verður flutt í lögreglufylgd frá Strandgötu yfir í Jólagarðinn í Eyjafjarðarsveit í kvöld ef fyrirætlanir ganga eftir. Samkvæmt lögreglunni á Norðurlandi eystra er húsið það breitt að stöðva þarf umferð meðan á flutningum stendur.
„Ef ekkert kemur upp á þá á að setja húsið á stóran vagn og koma honum í sveitina. Það verða notaðir tveir kranar til þess að lyfta þessu upp og vagninn keyrður undir. Svo er bara að þræða framhjá öllum hindrunum án þess að nokkuð komi fyrir,“ segir Benedikt Ingi.
Leigubílastöðin var auglýst gefins gegn því að vera sótt, eftir að bærinn hafði betur í langdreginni deilu um lóðina við Hofsbót.
Benedikt segir umferðarljós vera helstu hindranirnar á vegi hússins en samkvæmt mælingum sem hafa verið gerðar á það að sleppa á milli þeirra. „Menn þurfa bara að hitta rétt á og koma bílunum rétt þannig að það verði ekki óhöpp.“
Hann vonast til þess að flutningur hússins hafi í för með sér sem minnst rask fyrir hinn almenna borgara og býst við því að flestir verði farnir að sofa þegar húsið verður flutt.