Leiðtogafundi Evrópusambandsins og Bretlands sem halda átti í Brussel í næsta mánuði verður frestað vegna afsagnar Keirs Starmer forsætisráðherra Bretlands, og ekki er ljóst hvenær fundurinn verður haldinn.
Antonio Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins staðfesti þetta í gær. „Við erum að endurskoða möguleika á þessum fundi,“ sagði Costa á blaðamannafundi hér í Brussel í gær.
Starmer og stjórn hans hafa ítrekað lýst yfir vilja til að endursetja samband Bretlands við Evrópusambandið. Samningaviðræður um aukið samstarf af ýmsu tagi hafa staðið yfir undanfarnar vikur og mánuði; um greiðari viðskipti, til dæmis með landbúnaðarvörur, samþættingu orkukerfa og aukin tækifæri ungs fólks beggja vegna Ermarsundsins til að ferðast og stunda nám í Bretlandi og ríkjum Evrópusambandsins.
Á leiðtogafundinum sem átti að halda í Brussel 22. júlí, stóð til að staðfesta þessar ráðagerðir. Nú liggur fyrir að Evrópusambandið vill bíða eftir nýjum forsætisráðherra í Downingstræti 10 og vonast greinilega til þess að sá maður breyti ekki um kúrs. „Ég óska þess að arftaki hans [Starmers] haldi áfram á þeirri braut að endursetja samband okkar við Bretland,“ sagði Costa í gær.