Börn yngri en þrettán ára ættu aðeins að vera á samfélagsmiðlum undir eftirliti foreldra, segir sérfræðingahópur sem skilaði af sér skýrslu í Brussel í dag. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar að leggja fram tillögu um þetta í haust en skiptar skoðanir eru innan aðildarríkja.
„Þetta snýst ekki hvort börn komist að samfélagsmiðlum, heldur hvort og hvenær samfélagsmiðlar komast að börnum,“ sagði Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í morgun, þegar hún tók við skýrslu sérfræðingahópsins.
Hópurinn leggur til að börnum yngri en þriggja ára verði alfarið haldið frá samfélagsmiðlum, og til tólf ára aldurs fái þau aðeins að nota slíka miðla undir handleiðslu.
Ekki samstaða innan ríkjahóps Evrópusambandsins
Von der Leyen sagði í morgun að framkvæmdastjórnin myndi leggja fram tillögu um reglur í haust. Ljóst þykir hins vegar að um slíkar reglur verður ekki samstaða í hópi aðildarríkjanna.
Mörg þeirra eru reyndar að undirbúa reglur um samfélagsmiðlanotkun barna; frönsk stjórnvöld ýta á eftir löggjöf sem á að taka gildi í september, Grikkir undibúa bann fyrir yngri en fimmtán ára, sem á að taka gildi um næstu áramót, og stjórnvöld í Danmörku og Svíþjóð eru að undirbúa sams konar reglur.
Önnur ríki eru hins vegar alfarið á móti; til dæmis Eistland, Pólland, Belgía og Ítalía; stjórnvöld í Róm segja að slíkar reglur yrðu erfiðar í framkvæmd, og að foreldrar eigi að bera ábyrgð á notkun barna á samfélagsmiðlum.