Börn verða ekki vistuð í brottfararstöð, samkvæmt breytingartillögu meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð.
Formaður nefndarinnar reiknar með því að frumvarpið verði tilbúið til afgreiðslu síðar í mánuðinum.
Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð var lagt fram á Alþingi í nóvember. Hljóti frumvarpið samþykki í þinginu verður lögreglu heimilt að frelsissvipta fólk sem er búið að ákveða að senda úr landi eða ef mál þeirra er til meðferðar og getur leitt til brottflutnings, í þar til gerðum búðum.
Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, vonast til þess að hægt verði að leggja frumvarpið fram fyrir þinglok ef dagskrá þingsins leyfir.
„Við erum að vinna þarna nokkrar breytingartillögur og erum að ljúka yfirferð á þeim og fá lögfræðilegan yfirlestur á þeim breytingartillögum. Það er svona staða málsins í augnablikinu.“
Tillagan gerð að frumkvæði ráðherra
Samkvæmt núverandi fyrirkomulagi eru fullorðnir einstaklingar úr fjölskyldu vistaðir í gæsluvarðhaldi og börnin send í fóstur á meðan. Víðir segir breytingartillögunum ætlað að breyta því og vera með aðstöðu fyrir fjölskyldur annars staðar. Þannig geti fjölskyldur verið saman á meðan þær bíði þess að fara úr landi.
„Stærsta breytingin er auðvitað sú að það verði skýrt kveðið á um að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni. Það eru allir sem eru skilgreind börn þannig að þar inni verða börn ekki vistuð, hvorki ein né með fjölskyldum sínum,“ segir Víðir.
Hann segir nefndina hafa farið utan og kynnt sér brottfararstöðvar og hvernig starfsemi þeirra er háttað í öðrum löndum. Þá hafi margar umsagnir borist í þessa áttina og breytingin sé eðlileg.
„Ég held að þetta sé eðlileg breyting. Dómsmálaráðherra hafði í sjálfu sér frumkvæði að því að koma með útfærða tillögu í minnisblaði á þessa vegu.“
Rúmlega tvö þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista gegn frumvarpinu sem birtur var á Ísland punktur is í fyrradag. Þar er þess krafist að Alþingi hafni því.