19 einstaklingar munu hljóta íslenskan ríkisborgararétt með lögum ef frumvarp allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis verður samþykkt.
Nefndin lagði frumvarpið fram fyrr í dag og má búast við því að það verði samþykkt annað hvort í dag eða á morgun, enda er stefnt að því að ljúka þingstörfum á morgun.
Alls bárust 166 umsóknir um ríkisborgararétt en nefndin leggur til að fjórtán einstaklingum verði veittur ríkisborgararéttur auk fjögurra barna umsækjanda. Þá er lagt til að einum verði veittur ríkisborgararéttur til viðbótar sem ekki hlaut ríkisborgararétt með seinasta slíka frumvarpi vegna misritunar.
Flestir fæddir í Sýrlandi
Öllu færri hljóta ríkisborgararétt samkvæmt frumvarpinu en síðustu ár en á sama tíma fyrra hlutu 50 manns ríkisborgararétt samkvæmt tillögu nefndarinnar.
Þeir sem nefndin leggur til að hljóti ríkisborgararétt í þetta skiptið eru fæddir í 12 löndum en flestir, eða þrír talsins, eru fæddir í Sýrlandi. Þá eru tveir fæddir í Grikklandi, Venesúela, Íran, Úkraínu og hérlendis.
Í gegnum árin hafa heimsþekktir einstaklingar hlotið ríkisborgarétt hérlendis með lagasetningu en ber þar helst að nefna skákmeistarann Bobby Fischer og tónlistarmanninn Damon Albarn.
Fyrir ári síðan lagði nefndin til að fjöldi erlendra íþróttamanna sem spila hér á landi fengu ríkisborgararétt. Í þetta sinn er það ekki uppi á teningnum en ekki er að finna nafn neinna íþróttamanna í frumvarpinu í ár. Nefndin leggur til að Safa Jemai, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hljóti ríkisborgararétt.
Hér að neðan er listi yfir þá sem lagt er til að hljóti íslenskan ríkisborgararétt:
1. Afsoun Sörudóttir, f. 2021 í Grikklandi.
2. Ali Abbas Sulieman, f. 1998 í Venesúela.
3. Anna Theodóra Golabiewska, f. 2024 á Íslandi.
4. Aron Patryk Rokuszewski, f. 2023 á Íslandi.
5. Baran Sörudóttir, f. 2017 í Íran.
6. Barry Lee Lennon, f. 1946 í Þýskalandi.
7. Bohdana Vasyliuk, f. 1986 í Úkraínu.
8. Daniel Fonseca Fortes, f. 1957 á Grænhöfðaeyjum.
9. Daria Testoedova, f. 1999 í Rússlandi.
10. Kamal Nasser Nasser, f. 2014 í Sýrlandi.
11. Maison Nasser De Nasser, f. 1983 í Venesúela.
12. Nadia Sörudóttir, f. 2014 í Íran.
13. Njúsha Sörudóttir, f. 2019 í Grikklandi.
14. Safa Jemai, f. 1994 í Túnis.
15. Saif Nasser Nasser, f. 2020 í Sýrlandi.
16. Sayed Wahab Hashimi, f. 2001 í Afganistan.
17. Wesley Randall Farnsworth, f. 1987 í Bandaríkjunum.
18. Yozef Nasser Nasser, f. 2020 í Sýrlandi.
19. Zakhar Vasyliuk, f. 2012 í Úkraínu.
