Vettvangsvinnu Veðurstofu Íslands og Háskólans í Gautaborg við Öskju lauk í vikunni. Þar framkvæmdu vísindamenn mælingar á aflögun og gasi en aflögunarmælingar sýndu að landrisi er hætt og mældist smávægilegt landsig, segir á vef Veðurstofunnar.
Engar breytingar hafi mælst á samsetningu gass í eystri hluta Öskju miðað við fyrri ár. Skjálftavirkni á svæðinu sé lítil og í samræmi við þekkta bakgrunnsvirkni.
Niðurstöður mælinganna bendi því til þess að landrisi, sem hófst árið 2021, sé lokið og í ljósi þess sé viðvörunarstig Öskju aftur fært á stig 0. Líkt og áður geti þó orðið gufusprengingar innan jarðhitasvæða í Öskju.
Askja er virk eldstöð í Norðurgosbeltinu en síðasta gos var árið 1961 og varði það í um sex vikur. Askja lét lítið á sér kræla þar til í ágúst 2021 en þá hófst mikið landris á svæðinu og hefur land mest risið um rúmlega 60 cm síðan þá, segir á Vef Veðurstofunnar.