Lagði í stæði hreyfihamlaðra

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti alls 120 málum á tímabilinu frá klukkan 05 til 17 samkvæmt dagbók embættisins. Verkefnin voru fjölbreytt og vörðuðu meðal annars umferðarbrot, þjófnaði, brunatilvik og aðstoð við einstaklinga.
Tveir ökumenn voru stöðvaðir í sitthvoru málinu vegna of hraðs aksturs. Málin voru afgreidd á vettvangi.
Þá var ökumaður sektaður fyrir að leggja bifreið í stæði ætlað hreyfihömluðum án tilskilinna réttinda. Viðkomandi játaði brotið og sagði að hann hefði verið að flýta sér. Málið var afgreitt á vettvangi.
Lögreglu bárust einnig tvær tilkynningar um þjófnað í verslunum og eru þau mál nú til rannsóknar.
Í öðru tilviki var tilkynnt um ógnandi einstakling í verslun og óskað eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja hann. Þegar lögregla kom á vettvang var viðkomandi á bak og burt.
Tilkynnt var um eld í bifreið og er það mál einnig til rannsóknar.
Við almennt eftirlit stöðvaði lögregla ökumann sem reyndist vera undir áhrifum vímuefna við akstur og jafnframt án gildra ökuréttinda. Viðkomandi var handtekinn og færður á lögreglustöð í hefðbundið ferli áður en honum var sleppt að því loknu.
Að lokum aðstoðaði lögregla mann sem fannst sofandi í stigagangi og var honum komið heim til sín.