„Það hafa verið miklar sveiflur á alþjóðlegum olíumörkuðum undanfarið. Aukin bjartsýni um frið í Íran og yfirlýsingar um undirritun friðarsamnings næsta föstudag hafa skilað lægra heimsmarkaðsverði á olíu. Þessi lækkun virðist ekki vera að skila sér til íslenskra neytenda.“
Á þessum orðum hefst tilkynning á vef Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) sem var birt 16. júní, en þar er fjallað um að verðlag eldsneytis hér á landi hafi lítið breyst að undanförnu. Er vísað til þeirra aðgerða ríkisstjórnarinnar frá því í vor að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti úr 24% í 11%.
Breytingin tók gildi 1. maí.
Samanburður á verði í mars og júní athyglisverður
Í fréttinni segir að áhugavert sé að bera saman verð fyrir tæpum þremur mánuðum og svo aftur núna. Þá hafi heimsmarkaðsverð á olíu og gengi Bandaríkjadals verið á svipuðu róli og núna.
„Tíu daga samanburður á bensínverði frá 16. til 24. mars sl. við tíu síðustu dagana í júní er athyglisverður,“ segir í fréttinni.
Þá hafi meðalverð á bensínlítra á heimsmarkaði umreiknað í íslenskar krónur fyrir mars tímabilið verið 100,60 krónur. Vegið meðallítraverð til neytenda frá dælu á íslenska markaðnum þá var 216,20 krónur en þá með 24% virðisaukaskatti.
Sé verðið umreiknað miðað við 11% virðisaukaskatt eins og er í gildi tímabundið, þá fer lítraverðið til neytenda í 193,50 krónur.
„Meðalheimsmarkaðasverð á lítra síðustu 10 daga er 100,40 krónur og vegið meðalútsöluverð frá dælu 215,90 krónur. Verðið núna er því ríflega 22 krónum hærra síðustu dagana samanborið við útsöluverðið í mars.“
Tímabundin lækkun virðisaukaskatts skili sér ekki til neytenda
Bensínverðið um þessar mundir sé því nánast það sama og fyrir tæpum þremur mánuðum þegar virðisaukaskatturinn á hvern lítra var 24% en ekki 11%.
„Tímabundin lækkun virðisaukaskatts virðist ekki vera að skila sér til neytenda og það væri áhugavert að fá skýringar á þessum mikla verðmun.“