Fluglitakóði yfir Bárðarbungu hefur verið lækkaður niður í grænan en hann var hækkaður upp í gulan í gær. Þetta staðfestir náttúruvársérfræðingar á Veðurstofu Íslands í samtali við mbl.is.
Þá hafði svæðið sýnt eðlilega bakgrunnsvirkni í sólarhring og því var litakóðinn lækkaður aftur.
Smáskjálftahrina á Reykjanesskaga
Einnig mældist skjálfti að stærð 2,8 á Reykjanesskaga klukkan þrjár mínútur yfir sex síðdegis. Í kjölfarið fylgdi skjálftahrina og hafa um fimmtíu smáskjálftar mælst í kvöld, en svæðið hefur róast niður.