Pearl Shang, forstjóri Bio Effect í Kína, segir húðvörur íslenska fyrirtækisins verða kynntar með áberandi hætti í Kína í sumar.
„Við erum að koma með áhrifavald, sem er í fremstu röð á TikTok og hefur 2,7 milljónir fylgjenda og skilar mikilli sölu, til Íslands í lok júlí vegna viðburðar með íslenskum vörumerkjum í beinni útsendingu. Þetta er þriðji viðburðurinn okkar hér eftir heimsfaraldurinn. Fyrsta rafræna viðskiptahátíð Kína og Íslands í beinni útsendingu fyrir þremur árum skilaði mikilli sölu,“ segir Pearl sem ræddi við blaðamann á viðburði Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins, ÍKV, fyrr í þessum mánuði.
En umræddur áhrifavaldur heitir Shuai Ma, eða Mason Ma á ensku.
„Við vonumst til að geta skipulagt samtal til að kynna íslenskum lesendum hið blómlega viðskiptamódel rafrænna viðskipta í beinni útsendingu í Kína og deila nýjustu upplýsingum um þróun rafrænna viðskipta, neysluvörur og hugsanleg tækifæri fyrir íslenskar vörur í Kína,“ segir Pearl og vekur athygli á því að þetta form rafrænna viðskipta sé vel þekkt í Kína en sé enn nýtt fyrir evrópska eða íslenska neytendur. Um sé að ræða sölu á íslenskum vörum í beinni útsendingu.
Samhliða beinu flugi
Íslandskynningin kemur samhliða undirbúningi beins flugs milli Íslands og Kína en ÍKV hefur undirbúið dagskrá í Kína í tengslum við flugið. Er þess að vænta að fjölmenn sendinefnd haldi frá Íslandi til Kína í þeirri ferð.
Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands kynnti sér starfsemi Bio Effect í Kína í haust er hún heimsótti kynningarbás fyrirtækisins á ráðstefnu um sjálfbærni í Sjanghaí en Halla var þá heiðursgestur, eins og sagt var frá í Morgunblaðinu 22. október. Halla var þá í síðari hluta heimsóknar sinnar til Kína en í þeim fyrri hitti hún Xi Jinping forseta Kína í Peking og átti við hann mikil samskipti.
Þetta er rifjað upp vegna þess að áhugi Höllu á samstarfi íslenskra og kínverskra fyrirtækja getur opnað dyr og skapað ný tækifæri.
Hófst á árunum 2012–2013
Undir Pearl heyrir dreifing á hinum íslensku húðvörum Bio Effect á meginlandi Kína, í Hong Kong, Taívan og Makaó.
Að sögn Pearl hófst dreifing á vörum Bio Effect í Kína á árunum 2012-2013. Fyrsta skrefið var í Hong Kong en svo fór fyrirtækið í nokkrar hágæðaverslanir eins og Harvey Nichols, Lane Crawford og í fríhafnarverslanir og seldi hjá Cathay Pacific Airways, Air Macau og fleiri flugfélögum.
Breyttist í farsóttinni
Hún segir söluna í Kína hafa gengið vel á árunum 2013 til 2020 en að mikið hafi breyst þegar farsóttin hófst í mars 2020. Einkaneysla í Kína hafi síðan dregist saman og heldur dregið úr væntingum neytenda.
Við það bætist að stóru netverslanirnar í Kína, eins og Alibaba og JD, hafi skapað sér einokunarstöðu á netinu. Fyrir vikið sé hin stafræna umferð afskaplega dýr.
Af þessum sökum skapar það tækifæri fyrir Bio Effect að umræddur áhrifavaldur sé að koma til landsins.
Að sögn Pearl er hann þekktur áhrifavaldur í snyrtivörum og með um 2,7 milljónir fylgjenda á félagsmiðlinum Douyin og meðstofnandi Dandelion. Helsti markhópur hans er neytendur sem setja gæði í forgang og kjósa sér lúxusvörur í snyrtivörum.
Kínverski snyrtivörumarkaðurinn er geysilega verðmætur. Raunar mætti nefna fleiri markaði í Asíu í því efni. Þannig byrja konur í Suður-Kóreu og Japan líka að nota vörur gegn öldrun mjög ungar en vænta má sama mynsturs í fleiri Asíuríkjum þegar millistéttir stækka.
Heimsækja fleiri fyrirtæki
Reiknað er með því að kínverski áhrifavaldurinn heimsæki jafnframt verksmiðju Algalífs á Ásbrú en fyrirtækið hefur selt talsvert af fæðubótarefninu astaxanthín til Kína. Þá verður tekið hús á ÍSOR til að kynnast hreinleika íslenska vatnsins, komið við hjá Bio Effect og í íslenskri sundlaug, svo eitthvað sé nefnt.
Dagskráin er því til þess fallin að vekja áhuga Kínverja á ferðum til Íslands en kyrrðin og hreinleikinn á Íslandi höfðar til margra Kínverja í stórborgunum á austurströnd Kína.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður nánar greint frá beina fluginu til Kína á næstunni en rætt hefur verið um það í nokkurn tíma.
Halla forseti og Stone Fang, starfsmaður Bio Effect í Kína.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.