Kvartmilljarður fyrir þessa útsýnisperlu

Glæsilegt tæplega 300 fermetra einbýlishús við Rjúpnahæð 3 í Garðabæ er komið á sölu. Ásett verð eignarinnar er 250 milljónir króna.
Húsið var reist árið 1995 og er á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Það er teiknað af Kjartani Sveinssyni og stendur á 924 fermetra afgirtum lóð á grónum útsýnisstað. Samkvæmt skráningu HMS er eignin 257,8 fermetrar en fram kemur í fasteignaauglýsingu að raunveruleg stærð hennar sé um 296,4 fermetrar að óskráðum fermetrum meðtöldum.
Mikil lofthæð einkennir húsið og frá stofum og svölum á efri hæð er víðáttumikið útsýni. Eignin skiptist meðal annars í anddyri, hol, rúmgóðar stofur, fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, geymslur, þvottahús og bílskúr. Skipulag neðri hæðarinnar býður jafnframt upp á möguleika á að útbúa þar séríbúð með sérinngangi.
Sérsmíðaðar innréttingar hússins voru hannaðar af Pétri Hafsteini Birgissyni innanhússarkitekt. Á gólfum er gegnheilt Yberaro-parket með Jatoba-skrautlistum og innfelld lýsing er í flestum rýmum. Þá liggja fyrir nýjar innanhústeikningar eftir Berglindi Berntsen sem fylgja eigninni.
Á lóðinni er meðal annars heitur pottur og sólpallur úr lerki með steyptum skjólvegg. Fyrir framan húsið er stór hellulögð innkeyrsla og stétt með hitalögnum undir auk þess sem geymsluskúr stendur á lóðinni.
Stutt er frá eigninni í skóla, leikskóla, íþróttamannvirki og helstu verslanir í Garðabæ.