Krónan hefur ákveðið að skipta aftur yfir í gömlu umbúðirnar á Krónu ungnautahakki og Ódýrt nautgripahakki þar sem upp hafa komið tilvik þar sem nýju umbúðirnar, sem eru í plastpokum, hafa lekið. Verslunarkeðjan skipti nýverið um umbúðir á Krónu ungnautahakki og Ódýrt nautgripahakki. Í tilkynningu vegna breytinganna segir að með nýju umbúðunum sé notað um 60% minna plast og á ársgrundvelli sé sparað um átta tonn af plasti. Þá verði ungnautahakkið í 400 gramma pakkningum og nautgripahakk í 700 gramma pakkningum, við breytingarnar hafi kílóverðið einnig lækkað.
Krónan skiptir aftur yfir í gömlu hakkumbúðirnar