Kristrún eyddi afmæliskvöldinu á karókí-bar

Kristrún í karókíKristrún þótti standa sig með prýði
Mynd: Aðsend
Forsætisráðherra Íslands, Kristrún Frostadóttir eyddi afmæliskvöldinu sínu á karókí-kvöldi Samfylkingarinnar á The Dubliners í Reykjanesbæ en hún varð 38 ára í gær.
Að sögn gests sem staddur var þar og hafði samband við Mannlíf, var rífandi stemmning á barnum þetta kvöld en Kristrún tók lög á borð við Simply the Best, What´s Up? og Í síðasta skipti, af myndarbrag.
Erlendir ferðamenn sem voru staddir á The Dubliners í gærkvöldi trúðu því varla að þarna væri um að ræða sjálfan forsætisráðherra Íslands, að sögn gestsins sem Mannlíf ræddi við.
Hér fyrir neðan má sjá stutt myndskeið af söng afmælisbarnsins.