Krefjast þess að Ísrael sleppi tveimur úr Gasa-flotanum
Sameinuðu þjóðirnar kalla eftir því að Ísraelar láti tvo aðgerðasinna, sem teknir voru úr skipaflota á leið til Gasa, tafarlaust lausa og krefjast rannsóknar á „óhugnanlegum frásögnum“ um að þeir hefðu sætt alvarlegri illri meðferð.
Spænski ríkisborgarinn Saif Abu Keshek og brasilíski ríkisborgarinn Thiago Avila, sem haldið er í fangelsi í Ashkelon, voru meðal tuga aðgerðasinna í skipaflota á leið til Gasa sem ísraelskar hersveitir stöðvuðu á alþjóðlegu hafsvæði undan ströndum Grikklands síðastliðinn fimmtudag.
„Ísraelar verða að láta meðlimi Global Sumud-flotans, Saif Abu Keshek og Thiago Avila, lausa tafarlaust og skilyrðislaust, en þeir voru handteknir á alþjóðlegu hafsvæði og fluttir til Ísraels þar sem þeim er enn haldið án ákæru,“ sagði Thameen Al-Kheetan, talsmaður mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, í yfirlýsingu.