Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að ógilda kosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins.
Íbúar Árneshrepps og Kaldrananeshrepps samþykktu sameiningu sveitarfélaganna í íbúakosningum sem lauk 28. mars en niðurstöðurnar höfðu ekki verið staðfestar. Í Kaldrananeshreppi var sameiningin samþykkt með 73% atkvæða. Í Árneshreppi var hlutfall þeirra sem samþykktu sameininguna ívið lægra eða 56%.
Undirbúningsstjórn sameinaðs sveitarfélags hafði lagt til við innviðaráðuneytið að sameiningin tæki gildi 31. maí 2026 í kjölfar kosninga til sveitarstjórnar 16. maí. Ráðuneytinu barst kæra vegna framkvæmdar kosninga í Árneshreppi áður en kærufrestur rann út 4. apríl.
Kæran sneri að því að tillagan hefði ekki verið kynnt með 20 daga fyrirvara, annmarka á stjórnsýslu í aðdraganda kosninganna og að aðgengi að kjörstað hefði verið takmarkað.
„Fyrir liggur að ekki var viðvera kjörstjórnar eða fulltrúa á kjörstað stóran hluta þess tíma sem auglýst var að hægt yrði að kjósa. Þá var vegur ekki opnaður innan kjördæmisins á auglýstum kjördögum auk þess sem vegur inn í sveitina var ófær allan þann tíma sem kosning stóð yfir utan 25. mars,“ sagði í kærunni.
Ráðuneytið er sammála því og segir að ágalli hafi verið á kosningunum þar sem ekki var tryggt að kjósendur gætu greitt atkvæði á áður auglýstum opnunartíma.
Reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga kveður á um það að ef kosning er úrskurðuð ógild skuli fara fram ný íbúakosning – svokölluð uppkosning, þar sem fyrri kosning er endurtekin með sömu kjörskrá. Sveitarstjórnum sveitarfélaganna ber að ákveða í sameiningu hvenær uppkosning fer fram.