Ræstitækni var að stærstum hluta sýknuð af stefnu konu sem vann hjá fyrirtækinu og taldi að brotið hefði verið gegn sér með vinnuskipulagi og afskiptum af störfum hennar sem trúnaðarmanns.
Mikla athygli vakti í fyrra þegar konan sagði að álagið hefði verið svo mikið að hún hefði stundum ekki komist á salerni í vinnunni – þess í stað hefði hún stundum þurft að pissa í fötu. Andreina Edwards sagði þá að viðmót stjórnenda til sín hefði versnað eftir að hún varð trúnaðarmaður Eflingar.
Dómari við Héraðsdóm Reykjaness dæmdi Ræstitækni á föstudag til að greiða konunni 300 þúsund krónur í miskabætur. Það var vegna þess að stjórnendur fyrirtækisins létu hana standa frammi fyrir samstarfsfólki sínu og leiðrétta það sem hún hafði áður sagt þeim um nýgerðan kjarasamning.
Dómari segir að konan hafi lýst kjarasamningnum í góðri trú, samkvæmt upplýsingum frá stéttarfélagi sínu, og að stjórnendum hafi verið í lófa lagt að leiðrétta það sjálfir sem þeir töldu vera rangt í þeirri lýsingu.
Öðru í stefnu konunnar var hafnað.
Dómari sagði að stjórnendur fyrirtækisins hefðu gert það sem hægt væri að ætlast til af þeim til að koma til móts við athugasemdir konunnar um vinnuálag, meðal annars þegar hún varð ófrísk.
Í dóminum segir að konunni hafi ítrekað verið boðið að vinna eftir öðru vinnuplani þar sem hún væri nær starfsstöð fyrirtækisins þar sem hún hefði aðgang að salerni og hvíldaraðstöðu. Að auki hefði henni boðist að vinna í fjöleignarhúsum með salerni í sameign. Aukahvíld væri þó það eina sem konan hefði þegið.
Dómari segir að samkvæmt skýrslu Vinnuverndar og fyrirliggjandi vinnuáætlunum fái hvorki staðist að vinnuálag hafi verið of mikið né að verkefnum hafi ekki verið fækkað eftir að hún fékk aukahvíldartíma eða að hún hafi ekki fengið aukahvíld.