Kona hoppaði af elleftu hæð til að bjarga lífi sínu

Að minnsta kosti þrettán slösuðust þegar eldur kom upp í 21 hæða fjölbýlishúsi í Berlín í Þýskalandi á föstudagsmorgun. Björgunaraðgerðir voru umfangsmiklar og þurfti einn íbúa að stökkva niður í körfu á körfubíl slökkviliðsins.
Hoppaði konan af 11. hæð en körfubíllinn náði aðeins á þá níundu.
Eldurinn kom upp um klukkan 6.30 í Friedrichshain-hverfinu, skammt frá Ostbahnhof-lestarstöðinni. Samkvæmt þýsku fréttastofunni dpa kviknaði í íbúð á elleftu hæð og breiddist eldurinn þaðan yfir í íbúðina fyrir ofan.
Allir íbúar hússins voru fluttir á brott. Ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðsli þeirra þrettán sem slösuðust eru. Talsmaður slökkviliðsins lýsti björgunaraðgerðunum sem dramatískum. Eldurinn var kominn undir stjórn innan þriggja klukkustunda. Upptök hans eru ókunn.
Á sama tíma glíma þýsk yfirvöld við mikla hættu á gróðureldum. Um 1.800 íbúum þorpsins Gey í vesturhluta landsins, nærri landamærunum að Belgíu, var gert að yfirgefa heimili sín snemma á föstudag vegna skógarelds.
Eldurinn hafði þá lagt undir sig um 25 hektara skóglendis og unnu fjölmenn lið slökkviliðs- og viðbragðsaðila að því að hefta útbreiðslu hans. Íbúum var gert að halda í hjálparmiðstöð í nærliggjandi þorpi.
Mikil þurrkatíð hefur aukið hættu á skógareldum víða um Þýskaland og hefur óvenju mikið verið um gróðurelda í Evrópu í sumar.