Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

Mynd: Víkingur
Karlmaður á fimmtugsaldri er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, grunaður um alvarlega líkamsárás gegn konu á fertugsaldri í íbúð í fjölbýlishúsi í Kópavogi í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var maðurinn handtekinn á vettvangi, grunaður um að hafa ráðist á konuna inni í íbúðinni.
Konan var flutt á slysadeild til aðhlynningar en áverkar hennar eru sagðir alvarlegir.
Lögreglan rannsakar nú málið og hyggst fara fram á gæsluvarðhald yfir manninum síðar í dag.
Ekki verða veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu, samkvæmt tilkynningu lögreglu.