Alexandra Briem, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata og forseti borgarstjórnar, segist ekki hafa getað hringt í Neyðarlínuna þegar alblóðugur maður bankaði heima hjá henni og bað hana um hjálp.
Alexandra lýsir atvikinu í færslu á Facebook. Þar segir hún að um klukkan þrjú aðfaranótt sunnudags, hafi hún vaknað við að dyrabjöllunni heima hjá henni hafi verið hringt ákaft. Hún segist hafa heyrt læti í stigaganginum og að einhver hafi verið að kalla ákaft á hjálp.
„Þar voru tveir menn, annar lá vankaður á flísunum í anddyrinu og blæddi úr hnakkanum á honum, og hinn í miklu uppnámi að biðja um hjálp við að fá sjúkrabíl,“ segir Alexandra í færslunni.
Hún hafi strax reynt að hringja í Neyðarlínuna, 112, en í ljós hafi komið að síminn hennar geti ekki hringt í neyðarnúmer.
„Ég reyndi ítrekað, prófaði líka 911, vitandi að það lendir á sama stað, en ekkert virkaði. Þetta var mjög óþægilegt, og erfitt að útskýra fyrir manninum líka að ég væri raunverulega að reyna mitt besta til að hringja á bíl.“
Annar nágranni hafi síðan komið og getað hringt án vandræða. Alexandra segir allt hafa farið vel, maðurinn hafi komist undir læknishendur og ekki verið stórslasaður. Hún segir tilfinninguna um nóttina hafa verið mjög óþægilega.
Neyðarlínan brást strax við
Alexandra segist hafa farið beint í að kanna hvers vegna hún hafi ekki getað hringt á Neyðarlínuna um nóttina.
Ástæðan fyrir því hafi verið tvíþætt, „vegna þess að búið er að slökkva á 3g netinu, og hins vegar mögulega vegna þess að síminn minn (sem er annars ágætur og nýr Google Pixel 10 Pro) reynir bæði að nota WiFi til að hringja þegar hann getur og reynir að þvinga neyðarsímtöl á 3g net. Og þegar það er ekki til staðar virðist þetta allt saman frjósa.“
Þetta vandamál virðist bæði hrjá eldri síma og sumar gerðir af nýrri símum.
„Ég komst að því, með því að prófa prufunúmerið hjá Neyðarlínunni (1280), að það breytti engu þó ég stillti sim-kortið á að kjósa farsímanet framyfir WiFi. Annað sem ég komst að að ég þyrfti að athuga var að tékka á hvort VoLTE stilling væri virk. (Sem hún var).“
Á endanum hafi virkað að slökkva alfarið á WiFi á símanum. Vandamálið virðist hafa verið blanda af því að reyna að slökkva á WiFi og kerfinu í símanum sem hafi reynt að þvinga hann af því yfir á 3G-net.
Alexandra hrósar Neyðarlínunni sem hún segir hafa brugðist strax við. Hún segir tilganginn með því að segja frá atvikinu hafa verið að láta fólk vita af því að þetta gerist, ekki bara á eldri símum, og hvað fólk geti gert til að laga þetta.
„Það er að skoða þessar stillingar sem ég nefndi, og slökkva á WiFi, og ef það virkar ekki þá er varanúmer sem hægt er að nota sem er 5990112.“
Þakklát fyrir að töfin hafi ekki kostað mannslíf
Henni finnist ekki í lagi hvernig staðið hafi verið að því að taka 3G-netið úr sambandi. Hún segist almennt fylgjandi tækniþróun og framförum og að gömul kerfi víki fyrir nýjum.
En það verður að vera rétt staðið að því og passað að það sem tekur við virki líka, sérstaklega þegar um er að ræða lífsnauðsynlega neyðarinnviði þjóðarinnar.
Hún segist kunna ágætlega á tækin sem hún eigi og tækni almennt. Þó að hún hafi fundið út úr þessu í góðu tómi eftir atvikið hafi þetta verið erfitt og óþægilegt þegar á þessu stóð.
„Í sjálfum aðstæðunum um miðja nótt, nývöknuð í náttslopp og mann að blæða úr hnakkanum á gólfinu og ég þakka mínu sæla bara fyrir að ég komst að þessu í aðstæðum sem þó þoldu þessa töf og hún kostaði ekki mannslíf.“