Klukku­tíma bröns getur kostað marga daga í rúminu - Vísir

Klukku­tíma bröns getur kostað marga daga í rúminu - Vísir

Klukku­tíma bröns getur kostað marga daga í rúminu - Vísir

Í dag notar hún hjólastól og rafskutlu til að spara orku, ekki bara þegar hún er orðin ófær um að ganga, heldur til að eiga yfirhöfuð möguleika á að fara út úr húsi. En þrátt fyrir takmarkaða orku leiðir Helga starf ME-félagsins og vinnur að aukinni fræðslu, betri þjónustu og meiri viðurkenningu á sjúkdómi sem getur verið nánast ósýnilegur öðrum.

Hætti í öllu nema vinnunni

Árið 2015 starfaði Helga sem skrifstofustjóri og aðstoðarmaður prófessors við Háskólann í Lúxemborg og aðstoðaði við stjórnun um 45 manna teymis. Hún lýsir sér á þessum tíma sem miklum vinnualka.

Þann 27. ágúst þetta ár skráði hún í Excel-skjal sitt yfir yfirvinnutíma að hún hefði þurft að fara fyrr heim vegna veikinda. Hún mætti aftur daginn eftir en varð aftur að fara heim. Eftir um tíu daga veikindi fór hún til læknis og greindist með einkirningasótt.

„Mér leið mjög illa og ég var með mikinn hálsverk. Um leið og ég varð hitalaus fór ég aftur að vinna, þótt mér væri alls ekki farið að líða vel. Ég kom fram við þetta eins og venjulega flensu. 

Ég varð hins vegar aldrei hress aftur.

Helga segir vel þekkt að ME geti komið fram þegar fólk nær sér ekki eftir veirusýkingu og líkir því við langvinnt Covid, þótt ekki allir sem fá langvinnt Covid þrói með sér ME.

Helga var mjög hraust, virk og í fullu starfi áður en hún fékk einkirningasótt árið 2015.Aðsend

Helga hélt áfram að vinna í fjögur ár eftir að hún veiktist. Á sama tíma dró hún smám saman úr öllu öðru. Fyrst hætti hún í einni íþrótt, síðan í badminton og hjólreiðunum, og loks félagslífi og samveru með vinum og fjölskyldu. Vinnan var það síðasta sem hún sleppti.

„Vinnan var það sem ég hélt fastast í. Ég hætti í íþróttum, hætti að hjóla og hætti að hitta fólk, en reyndi áfram að mæta í vinnuna. Gildin okkar eru svolítið brengluð, sérstaklega hjá Íslendingum. Ég hefði mátt hlusta miklu fyrr á líkamann.“

Aksturinn í vinnuna tók um fimmtíu mínútur. Helga segir orðið þreyta ekki einu sinni ná að lýsa ástandinu sem hún var komin í, hún hafi verið orðin svo örmagna að hún óttaðist að sofna undir stýri. Þótt hún drykki venjulega ekki kaffi drakk hún stundum tvöfaldan eða fjórfaldan espresso áður en hún ók heim og hélt fyrir nefið til að koma því ofan í sig.

Smám saman varð henni erfitt að standa og jafnvel sitja upprétt. Hún var komin með stöðugan skjálfta, sama skjálfta og átti eftir að fella hana á eldhúsgólfið kvöldið sem hún ákvað loksins að hlusta.

Þurfti að syrgja gamla lífið

Helga fékk ME-greiningu árið 2019. Fram að því vissi hún ekki að sjúkdómurinn væri til. Þegar hún fór að lesa sér til áttaði hún sig á því að stöðugar tilraunir hennar til að halda áfram fyrra lífi voru að gera ástandið verra.

Það tók hana um eitt og hálft ár að sætta sig við að hún gæti hugsanlega ekki snúið aftur til lífsins sem hún hafði lifað fyrir veikindin.

„Maður syrgir sjálfan sig. Þetta er ferli sem maður þarf að ganga í gegnum. Ég er komin á mjög góðan stað í dag, en vil samt ekki gera lítið úr því sem ég gekk í gegnum. 

Það tók mig langan tíma að sætta mig við að ég gæti kannski ekki gert allt sem ég hafði gert áður.

Hún var send í þrettán vikna endurhæfingu í Þýskalandi. Starfsfólkið þekkti ME ekki vel í upphafi en kynnti sér sjúkdóminn og tók hana úr meðferðum sem gerðu ástandið verra. Þar fékk hún einnig aðstoð við að vinna úr sorginni og breyttri stöðu.

Taugalæknir mat hana algjörlega óvinnufæra og taldi ólíklegt að hún yrði vinnufær í framtíðinni. Helga var þó ekki tilbúin að sækja um örorku fyrr en í mars 2021, tveimur árum eftir greininguna.

Þegar Helga sótti loks um örorku í Lúxemborg lagði hún fram fjögur læknisvottorð: frá heimilislækni og þremur sérfræðingum. Þau komust öll að sömu niðurstöðu: hún væri óvinnufær.

Tryggingastofnun Lúxemborgar hafnaði samt umsókninni, tók hana af sjúkradagpeningum og sagði henni að snúa aftur til vinnu 7. mars 2021. Hún gat ekki unnið og varð tekjulaus í um 14 mánuði. Hún hitti alls um sex tryggingalækna á vegum kerfisins.

„Ég þurfti aftur og aftur að sanna að ég væri veik. Einn tryggingalæknir sagði að þótt ég væri þreytt gæti ég ekki bara sest í hjólastól. Annar sagði að fyrst ég hefði getað pínt mig til að vinna veik í fjögur ár hlyti ég að geta pínt mig áfram. Svona gengur smám saman frá manni.“

Þegar hún fékk loks viðtal hjá taugalækni á vegum tryggingakerfisins taldi hún að málið væri að leysast; læknirinn sagði að aðeins væri verið að ákveða hvort hún fengi 50 eða 100 prósent örorku. Viku síðar var umsókn hennar aftur hafnað. Áhrifin urðu alvarleg.

„Ég var gjörsamlega niðurbrotin og hætt að treysta sjálfri mér. Fjölskyldan kom til skiptis út til mín og hugsaði um mig. Sem betur fer sendi ég út hjálparkall þegar ég fann að ég réð ekki lengur við stöðuna. Ég var komin með sjálfsvígshugsanir og kvíðaköst oft á dag.“

Vegna álagsins léttist hún um tuttugu kíló og átti erfitt með að borða. Hún hafði reynt að halda áfram að búa í Lúxemborg vegna réttinda sinna þar en að lokum varð heilsan mikilvægari en fjárhagslegu áhrifin. Hún flutti heim til Íslands og var að eigin sögn nær rúmliggjandi í um ár. Dóttir hennar keypti með henni íbúð vegna þess að Helga gat ekki búið ein og fjölskyldan studdi hana einnig fjárhagslega.

Helga leggur áherslu á að þessi barátta hafi átt sér stað í Lúxemborg. Það þýði þó ekki að íslenska kerfið sé gallalaust eða að sambærilegar sögur eigi sér ekki stað hér á landi.

Helga notar hjólastól og rafskutlu til að spara dýrmæta orku.Aðsend

Skellurinn kemur tveimur dögum síðar

ME er að stórum hluta ósýnilegur sjúkdómur. Helga getur setið í viðtali, talað skýrt og virst hress, en tekið út afleiðingarnar síðar. Eitt helsta einkenni sjúkdómsins er svokallað PEM, eða versnun eftir áreynslu, þar sem áhrifin koma fram nokkrum klukkustundum eða dögum eftir að álagið átti sér stað.

Hjá Helgu kemur skellurinn yfirleitt um tveimur sólarhringum eftir álag. Hún nefnir sem dæmi rúmlega klukkutíma bröns með börnum sínum og barnabörnum: tveimur dögum síðar rauk streitumælingin í snjallúri hennar upp og nokkrum dögum síðar var hún enn ekki búin að jafna sig.

„Við lendum stöðugt í því að ofreyna okkur vegna þess að við finnum ekki endilega fyrir afleiðingunum strax. Hjá mér kemur skellurinn næstum eins og klukka tveimur sólarhringum síðar. Hann getur staðið yfir í einn dag, marga daga eða jafnvel viku. 

Þess vegna getur stutt samvera eða ferð út úr húsi kostað miklu meira en fólk sér.

Hávaði, ljós og margmenni geta einnig valdið miklu álagi og jafnvel sársauka. Helga notar meðal annars eyrnatappa til að draga úr skynáreiti. Hún getur gengið og staðið í stuttan tíma, líklega í mest fimm mínútur.

„Ég nota stólinn til að spara orku, ekki bara þegar ég neyðist til þess. Eftir að ég fór að hugsa þannig hefur mér farið fram miðað við árin 2020 til 2022. Ég get ekki gert mikið, en þó meira en áður. Það byggist á því að ég reyni að spara orkuna á öllum sviðum.“

Helga telur að mikil vanþekking sé enn til staðar um ME, bæði meðal almennings og innan heilbrigðiskerfisins. Opinberar upplýsingar um sjúkdóminn hafa þó styrkt stöðu sjúklinga og auðveldað þeim að krefjast þess að vera teknir alvarlega.Aðsend

Barátta fyrir viðurkenningu

Helga segir enn mikla vanþekkingu ríkja um ME. Fólk rugli sjúkdómnum reglulega saman við MS eða viti einfaldlega ekki hvað hann sé, og sú vanþekking getur reynst sérstaklega erfið þegar sjúklingar þurfa að útskýra fyrir heilbrigðisstarfsfólki hvað sjúkdómurinn sé.

„Það er ákveðið vopn í höndum sjúklinga þegar þeir hitta lækni sem fussar og segir að ME sé ekki til. Þá getur fólk bent á að upplýsingarnar séu á Heilsuveru. Það hjálpar mikið að þetta séu orðnar opinberar og viðurkenndar upplýsingar.“

Hún líkir stöðu ME við stöðu MS fyrir nokkrum áratugum og telur að viðhorf til ME muni breytast verulega þegar hægt verður að staðfesta sjúkdóminn með mælanlegum líffræðilegum niðurstöðum.

Þessi barátta fyrir viðurkenningu er líka verkefni ME-félagsins, sem Helga stýrir. Allt þetta er unnið án nokkurra opinberra rekstrarstyrkja en starfsemin byggist alfarið á framlögum og einstökum styrkjum.

„Við erum ótrúlega virk miðað við hvað við erum óhress. Flest í stjórninni hafa sjálf verið sjúklingar og við erum oft að tala við fólk sem er komið í algjört þrot.“

Tíu kílómetrar á rafskutlu

Helga ætlar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu þann 22. ágúst næstkomandi og safna áheitum fyrir ME-félagið.

En í stað þess að mæta á hlaupaskóm ætlar hún að mæta á rafskutlunni sinni. Lengsta ferð hennar á skutlunni til þessa var níu kílómetrar á Spáni. Tíu kílómetrarnir í Reykjavík verða því eins konar persónulegt met, þótt hraðinn verði líklega ekki til umræðu í íþróttafréttum.

„Fólk gæti hugsað að það sé ekkert mál að fara tíu kílómetra á rafskutlu. Fyrir heilbrigt fólk væri það kannski lítið mál, en fyrir manneskju með ME er það meiriháttar álag að fara yfirhöfuð út úr húsi. Ég held að ég geti þetta, en veit að einn og hálfur eða tveir tímar á leiðinni geta haft mikil áhrif á mig. Það er einmitt hluti af því sem ég vil að fólk skilji.“

Helga telur sig geta komist alla leið en veit að reikningurinn gæti borist nokkrum dögum síðar. Það er kannski kjarninn í því sem hún vill sýna fram á: Að hlusta á líkamann þýðir ekki að sitja hjá. Stundum þýðir það að velja vandlega hvaða ævintýri eru þess virði að eyða orkunni í.

Hér má heita á Helgu og styðja við starfsemi ME félagsins.

Heimasíða ME félagsins.

#bröns #getur #klukkutíma #kostað #marga


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262915713d/klukku-tima-brons-getur-kostad-marga-daga-i-ruminu

📰 Aðrar fréttir

Dettifossmálið - „Ég var meira að pæla í því að lifa af“
📅 16.09.2026 👁️ 2
Dettifossmálið - „Ég var meira að pæla í því að lifa af“
Annar tveggja skipverja Dettifoss, sem ákærður er í máli sem varðar innflutning á um 14 lítrum af amfetamínbasa, segist hafa upplifað að hann ætti erf...
„Burðardýr“ sem hafi ekki þorað öðru en að klára verkefnið
📅 16.09.2026 👁️ 1
„Burðardýr“ sem hafi ekki þorað öðru en að klára verkefnið
Aðalmeðferð í Dettifossmálinu svokallaða hófst í héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Alls eru fjórir ákærðir og snýst málið um smygl á rúmum 14 lítrum af...
Wolt sendlar lögðu niður störf – Segjast tapa á því að sendast með pantanir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Wolt sendlar lögðu niður störf – Segjast tapa á því að sendast með pantanir
Sendlar sem starfa fyrir heimsendingarfyrirtækið Wolt hér á landi lögðu niður störf tímabundið í dag. Þetta gerðu þeir til að ná athygli forsvarsmanna...
CCTV shows last sighting of Noah Woods
📅 16.09.2026 👁️ 1
CCTV shows last sighting of Noah Woods
Suffolk Police released CCTV of the last confirmed sighting of Noah in the park in Brantham at 14:37 BST on Tuesday.
Margir telji hús­næði brottfararstöðvar of nærri íbúabyggð - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Margir telji hús­næði brottfararstöðvar of nærri íbúabyggð - Vísir
Gangi samningaviðræður eftir verður brottfarastöð fyrir útlendinga sem vísa á úr landi opnuð að Klettatröð 8 á Ásbrú í Reykjanesbæ. Svæðið gengur undi...
Sæ­var las upp yfirlýsingu: „Ég treysti á­kæru­valdinu ekki“ - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Sæ­var las upp yfirlýsingu: „Ég treysti á­kæru­valdinu ekki“ - Vísir
Í yfirlýsingu sinni sagði hann meðal annars að hann hefði enga aðkomu átt að málinu, hann væri ekki sá sem gengur undir nafninu Cloud, sem fjallað hef...
Ný réttar­höld gætu reynst flókin í fram­kvæmd - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Ný réttar­höld gætu reynst flókin í fram­kvæmd - Vísir
Eftir réttarhöldin eru uppi spurningar um það hvernig kviðdómendur eru valdir í Massachusetts í Bandaríkjunum. Dómarinn í málinu hefur tryggt að nöfn ...
Höfnuðu ráð­gjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í for­gangi - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Höfnuðu ráð­gjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í for­gangi - Vísir
Vestfirski fréttamiðilinn Bæjarins besta greinir frá málinu í gær. Í frétt Bæjarins besta kemur fram að á síðasta ári hafi Fjórðungssamband Vestfirðin...
EFTA-dómstóllinn tekur undir með MAST gegn Ísteka
📅 16.09.2026 👁️ 1
EFTA-dómstóllinn tekur undir með MAST gegn Ísteka
Blóðsöfnun Ísteka úr fylfullum blóðmerum fellur undir tilskipun Evrópusambandsins um tilraunir eða vísindalegan tilgang, segir EFTA-dómstóllinn í ráðg...
Fóru átta­tíu prósent fram úr á­ætlun - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Fóru átta­tíu prósent fram úr á­ætlun - Vísir
Gulli Helga, umsjónarmaður þáttanna, segir að sem fyrr sé fjölbreytnin í fyrirrúmi. Það verður meðal annars fylgst með lagfæringum á veitingastað þar ...
ESB bannar fyrrverandi aðstoðarkonu Zelensky aðgang að þinginu – talar fyrir friði (MYNDBAND)
📅 16.09.2026 👁️ 1
ESB bannar fyrrverandi aðstoðarkonu Zelensky aðgang að þinginu – talar fyrir friði (MYNDBAND)
ESB bannar fyrrverandi aðstoðarkonu Zelensky aðgang að þinginu – talar fyrir friði (MYNDBAND) Fréttin16. september 2026Erlent, Evrópusambandið, Úkraín...
Earl Spencer's unreleased book on Diana stolen in the Netherlands
📅 16.09.2026 👁️ 1
Earl Spencer's unreleased book on Diana stolen in the Netherlands
The theft of Earl Spencer's memoir about his late sister comes one week ahead of the book's release.
Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráð­herra illa - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráð­herra illa - Vísir
Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við fréttastofu vegna umfjöllunar Vísis í gær um dagsleyfi Hannesar Valle Þor...
Blóð­taka úr hryssum telst til­raun á dýrum - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Blóð­taka úr hryssum telst til­raun á dýrum - Vísir
Fyrirtækið Ísteka stefndi íslenska ríkinu eftir að Matvælastofnun synjaði því um leyfi til blóðmerahalds í vor. Stofnunin taldi starfsemina ekki uppfy...
Bæjarstjóri um brottfararstöð: „Staðsetning og útfærsla skipta okkur miklu máli“
📅 16.09.2026 👁️ 1
Bæjarstjóri um brottfararstöð: „Staðsetning og útfærsla skipta okkur miklu máli“
„Það ætla ég bara rétt að vona, að ríkið komi ekki enn einu sinni hér og geri eitthvað án samráðs við sveitarfélögin,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjar...
Þögull sem gröfin um Sæ­var - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Þögull sem gröfin um Sæ­var - Vísir
Þetta kom fram þegar skipverjinn gaf skýrslu við aðalmeðferð Dettifossmálsins. Áður hafði hinn skipverjinn gefið skýrslu en fjallað er um hana í frétt...
Dettifossmálið - Upplifði sig svikinn og notaðan og er óskýr um aðkomu Sævars Arnar
📅 16.09.2026 👁️ 2
Dettifossmálið - Upplifði sig svikinn og notaðan og er óskýr um aðkomu Sævars Arnar
Aðalmeðferð er nú hafin í svokölluðu Dettifossmáli eftir nokkuð lífleg átök í Héraðsdómi Reykjavíkur. Meðal ákærðra eru Sævar Örn Hilmarsson, Kastriot...
Íslandshús setur niður fyrstu forsteyptu hraðahindrunina í Reykjanesbæ
📅 16.09.2026 👁️ 2
Íslandshús setur niður fyrstu forsteyptu hraðahindrunina í Reykjanesbæ
Í götunni Nónvörðu í Reykjanesbæ hefur Íslandshús komið fyrir fyrstu forsteyptu hraðahindruninni sem fyrirtækið framleiðir. Um er að ræða afrakstur þr...
Morðingi sem verður tekinn af lífi í dag pantaði risastóra hinstu máltíð – Sjáðu hvað hann pantaði
📅 16.09.2026 👁️ 2
Morðingi sem verður tekinn af lífi í dag pantaði risastóra hinstu máltíð – Sjáðu hvað hann pantaði
Stacey Humphreys verður tekinn af lífi fyrir tvö morð í dag í Georgíufylki í Bandaríkjunum. Humphreys pantaði risavaxna hinstu máltíð.Breska blaðið Th...
Streymisveitan Apple TV loksins á Ís­landi - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Streymisveitan Apple TV loksins á Ís­landi - Vísir
Mbl greindi frá tíðindunum í morgun en engin formleg skýring hefur verið gefin út af Apple um breytinguna.  Þegar vefsíða Apple yfir aðgengi ólíkra la...
Andy Burnham rejects 'tax and spend socialist' comments
📅 16.09.2026 👁️ 2
Andy Burnham rejects 'tax and spend socialist' comments
The prime minister insists he is prepared to take "difficult decisions" at next month's Budget.
Tenerife South passenger numbers fall as other Canary Islands airports grow
📅 16.09.2026 👁️ 2
Tenerife South passenger numbers fall as other Canary Islands airports grow
Passenger traffic at Tenerife South Airport fell by 4.2% during August, making it the notable exception as most of the Canary Islands' other major air...
Ók of hratt í hálku þegar bana­slys varð á Fjarðar­heiði - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Ók of hratt í hálku þegar bana­slys varð á Fjarðar­heiði - Vísir
Banaslysið átti sér stað á Fjarðarheiði um miðjan dag 3. desember. Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa sem var birt í dag kemur fram að erlendur...
Bonnie Greer: British-American author and critic dies at 77
📅 16.09.2026 👁️ 2
Bonnie Greer: British-American author and critic dies at 77
Her husband says the playwright and cultural and political commentator died after a brief illness.
Ursula Von der Leyen kallar eftir auknum völdum ESB á sviði öryggismála, félagslegrar stýringar og hervæðingar – Kanada fær stöðu „tengiaðila“
📅 16.09.2026 👁️ 2
Ursula Von der Leyen kallar eftir auknum völdum ESB á sviði öryggismála, félagslegrar stýringar og hervæðingar – Kanada fær stöðu „tengiaðila“
Ursula Von der Leyen kallar eftir auknum völdum ESB á sviði öryggismála, félagslegrar stýringar og hervæðingar – Kanada fær stöðu „tengiaðila“ Fréttin...
Hætta við að koma fram með Ed Sheeran
📅 16.09.2026 👁️ 2
Hætta við að koma fram með Ed Sheeran
Hætta við að koma fram með Ed Sheeran Finn­eas, Aaron Rowe, Beoga og Lukas Gra­ham hafa dreg­ið sig úr tón­leika­ferð Ed Sheer­ans eft­ir að Macklemor...
Leynibréf Þorgerðar
📅 16.09.2026 👁️ 2
Leynibréf Þorgerðar
Leynibréf Þorgerðar Fréttin16. september 2026Erlent, Evrópusambandið, Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Þorgrerður Katrín Gunnarsdó...
„Suður-Kórea er að fara að greiða fyrir rafvæðingu íslenskra strandveiðibáta“
📅 16.09.2026 👁️ 2
„Suður-Kórea er að fara að greiða fyrir rafvæðingu íslenskra strandveiðibáta“
Fyrirtækið Grænafl hefur unnið að lausnum til að rafvæða lítil fiskiskip frá 2024. Orkuskipti strandveiðiflotans hér á landi gætu sparað losun á tugum...
Dæmdar skaðabætur áratug eftir Parísarrán - Upphæðin vekur athygli
📅 16.09.2026 👁️ 2
Dæmdar skaðabætur áratug eftir Parísarrán - Upphæðin vekur athygli
Dómstóll í París dæmdi Kim Kardashian eina evru í skaðabætur fyrir að hafa verið fórnarlamb vopnaðs ráns í frönsku höfuðborginni árið 2016. Upphæðin e...
Vandræðin hrannast upp hjá Ed Sheeran – 200 þúsund fylgjendur horfnir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Vandræðin hrannast upp hjá Ed Sheeran – 200 þúsund fylgjendur horfnir
Breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran hefur misst um 200 þúsund fylgjendur á Instagram á einum sólarhring eftir að harðar deilur blossuðu upp í kringum ...
Upp­færsla setti strik í hleðslureikninginn - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Upp­færsla setti strik í hleðslureikninginn - Vísir
Fréttastofu barst í gærkvöldi ábendingar frá eigendum rafbíla sem lentu í basli við að hlaða bíla sína vegna uppfærslu á forriti Orku náttúrunnar. Þá ...
Einstaklingar í brottvísunarstöð verða vistaðir á Ásbrú
📅 16.09.2026 👁️ 2
Einstaklingar í brottvísunarstöð verða vistaðir á Ásbrú
Dómsmálaráðuneytið er komið með augastað á húsnæði fyrir brottvísunarstöð fyrir einstaklinga og hefjast samningaviðræður við eiganda húsnæðisins á mor...
Ók of hratt miðað við aðstæður og missti stjórn á bíl í banaslysi
📅 16.09.2026 👁️ 2
Ók of hratt miðað við aðstæður og missti stjórn á bíl í banaslysi
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur lokið rannsókn sinni á banaslysi sem varð á Fjarðarheiði 3. desember í fyrra. Einn lést í slysinu.Nefndin komst að...
Daði Már Kristófersson: Ríkisstjórnin er til í aðgerðir til að kjarasamningar haldi – verður samt ekki á kostnað hallalausra fjárlaga
📅 16.09.2026 👁️ 2
Daði Már Kristófersson: Ríkisstjórnin er til í aðgerðir til að kjarasamningar haldi – verður samt ekki á kostnað hallalausra fjárlaga
Ríkisstjórnin hefur átt uppbyggileg samtöl við aðila vinnumarkaðarins um stöðuna í kjarasamningamálum og hefur opnað á aðkomu ríkisins til að ekki kom...
Kanada fær boð um aukaaðild að ESB – En hvað þýðir það?
📅 16.09.2026 👁️ 2
Kanada fær boð um aukaaðild að ESB – En hvað þýðir það?
Ursula Von Der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur boðið Kanada aukaaðild að sambandinu. Yrði því tekið yrði þetta í fyrsta sin...
Síbrotamaður ákærður fyrir mjög alvarlega líkamsárás í Mjódd
📅 16.09.2026 👁️ 2
Síbrotamaður ákærður fyrir mjög alvarlega líkamsárás í Mjódd
Þann 14. september síðastliðinn var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur mál sem Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur höfðað gegn manni fyrir alls...
Man arrested after 22-year-old dies following attack in Playa de las Américas
📅 16.09.2026 👁️ 2
Man arrested after 22-year-old dies following attack in Playa de las Américas
A 21-year-old man has been arrested following the death of a 22-year-old who was seriously injured during an attack in Playa de las Américas, the Nati...
Hús­næði fundið undir brottfararstöð - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Hús­næði fundið undir brottfararstöð - Vísir
Framkvæmdasýslan auglýsti í sumar eftir húsnæði á Suðurnesjum undir starfsemi brottfararstöðvar. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu bárust a...
Ed Sheeran row: How being music's Mr Nice Guy contributed to biggest crisis of his career
📅 16.09.2026 👁️ 2
Ed Sheeran row: How being music's Mr Nice Guy contributed to biggest crisis of his career
Sheeran tries to stay away from politics and controversy, but that stance has come in for criticism.
Ó­vænt gagn og af­leikur ríkis­stjórnarinnar - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Ó­vænt gagn og af­leikur ríkis­stjórnarinnar - Vísir
Fjallað er um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Eftir hækkun á kílómetragjaldi gætu ökumenn þurft að greiða hátt í fimm hundruð krónur f...
Nýnemum í tölvunarfræði og tengdum greinum fækkaði um þriðjung milli ára
📅 16.09.2026 👁️ 2
Nýnemum í tölvunarfræði og tengdum greinum fækkaði um þriðjung milli ára
Á síðustu misserum hefur töluvert verið rætt um að framfarir í gervigreind leiði til aukins atvinnuleysis því ekki verði lengur sama þörf fyrir mannsh...
Kosovo's former president sentenced to 25 years for war crimes
📅 16.09.2026 👁️ 2
Kosovo's former president sentenced to 25 years for war crimes
Hashim Thaci has been jailed for crimes including torture and murder during Kosovo's independence war with Serbia.
Lucy Letby: Solicitor blames hospital bosses for police delay
📅 16.09.2026 👁️ 2
Lucy Letby: Solicitor blames hospital bosses for police delay
The Thirlwall Inquiry found repeated failures by hospital leaders to act on concerns.
Óttinn við að vera of venju­leg drif­krafturinn - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 1
Óttinn við að vera of venju­leg drif­krafturinn - Vísir
Emma er þakklát fyrir öll tískuslys fortíðarinnar og hefur gríðarlegan áhuga á klæðaburði og stíl. Hún er hægt og rólega að sleppa alfarið tökum á áli...
„Ég myndi segja að ég væri burðar­dýr“ - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
„Ég myndi segja að ég væri burðar­dýr“ - Vísir
Aðalmeðferð í Dettifossmálinu hófst formlega klukkan 10:20 í morgun eftir að tekist hafði verið á um framlagningu gagna. Lengi leit út fyrir að fresta...
Af­hjúpa RIS-vanda í Evrópu og Banda­ríkjunum - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Af­hjúpa RIS-vanda í Evrópu og Banda­ríkjunum - Vísir
Mennirnir eru sagðir hafa lagt á ráðin um að myrða þekktan rússneskan andstæðing ríkisstjórnar Vladimírs Pútín í Bandaríkjunum. Mennirnir hófu þetta r...
The Canary Islands: Where Volcanoes Shape Culture
📅 16.09.2026 👁️ 2
The Canary Islands: Where Volcanoes Shape Culture
The Canary Islands are the kind of place I’d bring up when friends start talking about a holiday that feels different from the usual beach trip. You c...
Bensínlítrinn jafngildi 452 krónum hjá sparneytnum bílum eftir hækkun ríkisins
📅 16.09.2026 👁️ 2
Bensínlítrinn jafngildi 452 krónum hjá sparneytnum bílum eftir hækkun ríkisins
Bensínlítrinn jafngildi 452 krónum hjá sparneytnum bílum eftir hækkun ríkisins Fyr­ir­hug­uð hækk­un kíló­metra­gjalds gæti gert það að verk­um að kos...
Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sæ­vari Eyjólfs - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 2
Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sæ­vari Eyjólfs - Vísir
Smartland greindi frá tíðindunum í morgun og staðfesti Sigga Dögg við miðilinn að hún væri orðin einhleyp. Sigga Dögg er einn þekktasti kynfræðingur l...
Vilja færa fjögur þing­sæti í Suðvesturkjördæmi - Vísir
📅 16.09.2026 👁️ 3
Vilja færa fjögur þing­sæti í Suðvesturkjördæmi - Vísir
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur sent Alþingi tillögurnar og leggur til að þingmannanefnd fjalli um þær með aðkomu allra þingf...