Utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sat fyrir svörum utanríkismálanefndar alþingis vegna tillögu sinnar um þjóðaratkvæði um ESB-umsókn. Á fundi með þingnefndinni sagðist utanríkisráðherra leiður yfir hve fáir taki undir með henni og vísaði einkum til annarra þingmanna.
Þorgerður Katrín telur sig vita að Evrópusambandið muni breyta grunnreglum sínum til að fá Ísland inn í sambandið. Hún sagðist tilbúinn að taka áhættu með ESB-umsókn, það yrði að koma í ljós hvort hún hefði rétt fyrir sér eða ekki. Komi annað á daginn sé ráðherra tilbúinn að taka afleiðingunum. Þorgerður Katrín talaði um sjálfa sig í þriðju persónu er hún útskýrði nánar: ,,Þá bara getið þið sagt: heyrðu, þessi kerling hér, hún var bara alltaf með allt vitlaust fyrir sér. Ég er tilbúin til þess að taka þá áhættu.“
Pawel leiðréttir flokkssystur sína
Í leiðara Morgunblaðsins á mánudag var vitnað í Pawel Bartoszek þingmann og flokksbróðir utanríkisráðherra sem leiðrétti málflutning Þorgerðar Katrínar með þeim orðum að útgangspunktur samtalsins við ESB geti ekki verið að ,,víkja forgangsrétti Evrópuréttar til hliðar.“ Leiðari Morgunblaðsins segir með ólíkindum að samflokksmaður utanríkisráðherra sjái sig knúinn til að afrugla orð ráðherra. Leiðarinn veltir fyrir sér hvort Þorgerður Katrín tali gegn betri vitund og reyni að afvegaleiða þing og þjóð.
ESB-umsókn snýst um Ísland ekki Þorgerði Katrínu
Hugmyndir utanríkisráðherra um að slyngir samningamenn Íslands ,,geti samið sig undan Evrópuréttinum í veigamiklum efnum, geti undanþegið Ísland forgangi Evrópuréttar, sjálfrar undirstöðu Evrópusamrunans,“ telur Morgunblaðið hæpið í meira lagi.
Í lok leiðarans er minnt á að ESB-viðræður, ,,sem utanríkisráðherra vill leggja allt í sölurnar til þess að hefja fyrirvaralaust,“ snúist ,, ekki um „þessa kerlingu“. Þær snúast um Ísland.“