Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að það hljóti að vera elliglöp hjá Jóni Steinari Gunnlaugssyni, fyrrverandi hæstaréttardómara, að rekja forræðishyggju sína til sósíalisma. Jón Steinar fór mikinn í gagnrýni sinni á Kára í færslu á Facebook vegna skrifa þess síðarnefnda um sölu áfengis en Kári er alfarið á móti því að einkaaðilar sinni sölu áfengis og hefur kallað eftir því að tekið verið á málunum.
Kári svarar Jóni Steinari fullum hálsi: „Svo leyfir þú þér að „saka“ mig, jafnaldra þinn um elliglöp“