Þingmenn Miðflokksins fara fram á að leynd verði aflétt af gögnum áður en hægt verður að greiða atkvæði um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Fyrir þingfund í dag virtist sem sátt væri meðal þingflokka um að klára umræðuna í dag og greiða atkvæði um málið á morgun.
Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, kvaddi sér hljóðs að loknum óundirbúnum fyrirspurnartíma og sagðist ekki kannast við neina sátt. Þvert á móti hafi, af hálfu þingmanna Miðflokksins í það minnsta, verið að byggjast upp óánægja vegna fjarveru ráðherra og svara ráðherra í fyrirspurnartímum.
Eins krafðist Sigríður þess að þingmönnum yrði veittur aðgangur að gögnum sem vistuð hafa verið í „leyniherbergi“ eins og stjórnarandstöðuþingmenn hafa kallað það. Umrædd gögn eru geymd í fundarherbergi og hafa allir þingmenn í utanríkismálanefnd aðgang að herberginu.
Fleiri þingmenn stjórnarandstöðunnar tóku undir þessa kröfu.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingflokksformaður Flokks fólksins, lýsti furðu á ummælum Sigríðar. Það var gert samkomulag hér fyrir helgina, annars hefði þingfundur staðið lengur á föstudaginn og sennilega verið á laugardaginn líka ef þingmenn og því var sleppt af því að þingmenn minni hlutans töldu sig ekki hafa eða þurfa meiri tíma en þetta fyrir umræðuna.“
Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingar sem situr í utanríkismálanefnd, gefur lítið fyrir fullyrðingar um leyniherbergi. „Kann að vera að það henti þeim betur að segja að þessi gögn séu tortryggileg? Vinnið vinnuna ykkar, farið og kynnið ykkur gögnin,“ sagði Dagbjörg og bætti við að gögnin væru bundin trúnaði af góðri ástæðu. Gögnin varði milliríkjasamskipti og á engan hátt fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu og algilt sé að slík gögn séu bundin trúnaði.