Kanadísk stjórnvöld hafa frá og með deginum í dag lagt á níutíu daga komubann fyrir ríkisborgara Lýðstjórnarlýðveldsins Kongó, Úganda og Suður-Súdan vegna faraldurs ebólu sem þar geisar.
Kanadískum ríkisborgurum og öðrum sem heimsótt hafa smitsvæðin er gert að sæta þriggja vikna sóttkví frá og með 30. maí. Bandaríkjastjórn hefur sett takmarkanir á komur ríkisborgara landanna þriggja og stjórnvöld á Bahama hafa svipuð áform í bígerð.
Enn hefur ekki greinst ebólasýking í Kanada, Bandaríkjunum og Bahama. Kona frá Úganda er í einangrun á Indlandi vegna gruns um ebólasýkingu. Það yrði fyrsta sýkingin í Suður-Asíu síðan 2014.