Þrír eru vistaðir í fangageymslu lögreglu eftir gærkvöldið og nóttina. Fimm voru teknir úr umferð fyrir ölvunar- eða fíkniefnaakstur og einn var að auki kærður fyrir vörslu fíkniefna.
Í hverfi 221 var ökumaður kærður fyrir að stinga af frá umferðaróhappi en engin slys urðu á fólki. Í hverfi 201 var ökumaður kærður fyrir að virða ekki gangbrautarrétt eftir að hafa ekið á hjólandi vegfaranda.
Í hverfi 111 var svo einstaklingur kærður fyrir brot á lögum um velferð dýra eftir að hafa „misþyrmt“ gæludýrinu sínu eins og það er orðað í skeyti lögreglu.