Leikkonan Jennifer Garner telur að pása frá stefnumótum væri besta ákvörðunin sem hennar fyrrverandi og barnsfaðir, leikarinn og leikstjórinn Ben Affleck gæti tekið eftir skilnað hans við leik- og söngkonuna Jennifer Lopez. „Jen heldur að það gæti í raun verið gott fyrir Ben að taka sér pásu frá stefnumótum í smá tíma. Henni er mjög annt um hann og vill aðeins það sem er honum fyrir bestu að lokum,“ sagði heimildarmaður í samtali við Page Six.
Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer