Jean-Luc Mélenchon, leiðtogi vinstri flokksins La France Insoumise, gefur kost á sér í frönsku forsetakosningunum á næsta ári. Hann tilkynnti þetta í viðtali á sjónvarpsstöðinni TF1 í gær.
Hann var í framboði 2012, 2017 og 2022 þegar hann varð þriðji á eftir Marine Le Pen, leiðtoga Þjóðfylkingarinnar og Emmanuel Macron forseta. Mélenchon hefur áratugum saman verið í fararbroddi vinstrimanna í Frakklandi og hefur gegnt fjölda ráðherraembætta.
Macron getur samkvæmt stjórnarskránni ekki boðið sig fram þriðja sinni. Le Pen stendur í ströngu við að fá hnekkt banni við framboði vegna dóms sem hún hlaut fyrir að misnotkun á fjármunum úr sjóðum Evrópusambandsins.
Takist það ekki verður formaðurinn Jordan Bardella frambjóðandi Þjóðfylkingarinnar sem nýtur nokkurrar hylli þrátt fyrir að hafa ekki náð að heilla kjósendur í helstu stórborgum landsins í sveitarstjórnarkosningum í mars. Miðhægrimaðurinn Edouard Philippe, sem var um tíma forsætisráðherra í stjórn Macrons, hefur einnig boðað framboð á vori komanda.