Jarðskjálfti af stærðinni 6,6 varð í Kólumbíu í dag. Upptök hans voru í vesturhluta landsins. Fyrstu fregnir herma að byggingar í höfuðborginni Bógóta og í Quito höfuðborg Ekvador. Skjálftinn fannst einnig í Panama.
Mæling skjálftans kemur frá jarðvísindastofnun Kólumbíu en sambærileg stofnun í Bandaríkjunum, USGS, segir skjálftann vera 7,4 að stærð. Byggingar í Bógóta hafa verið rýmdar vegna skjálftans.
Nubia Carolina Córdoba-Curi héraðsstjóri í Chocó-héraði, þar sem skjálftinn átti upptök sín, segir á Xað í borginni Quibdó hafi orðið slys á fólki og byggingar skemmst mikið. Verið sé að meta tjónið.
Fréttin verður uppfærð.