Í frétt danska ríkisútvarpsins um jarðskjálftann segir að hans hafi meðal annars orðið vart á Austurbrú, í Amager, Hróarskeldu og Hellerup auk Malmö í Svíþjóð.
Jarðfræðistofnun Danmerkur og Grænlands segir jarðskjálftann, sem mældist af stærðinni 3,9 þann þriðja stærsta sem mælst hefur í Danmörku. Sá stærsti mældist árið 2010 og var 4,3.
Á vef Evrópsku jarðskjálftastofnunarinnar, EMSC, segir að skjálftinn hafi orðið klukkan 14:14:35, rétt austur af landi og á sautján kílómetra dýpi. Danska ríkisútvarpið vísar í sænska jarðskjálftafræðinga sem segja skjálftamiðjuna hafa verið í bænum Køge, sem er suðvestan við Kaupmannahöfn.
Á myndum sem fréttastofa hefur undir höndum má sjá að sprungur mynduðust í veggjum íbúa. Myndir féllu af veggjum og speglar brotnuðu vegna skjálftans.
Fannst þú fyrir skjálftanum? Náðir þú myndbandi? Hafðu samband við ritstjorn@visir.is.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Fannst þú fyrir skjálftanum? Náðir þú myndbandi? Hafðu samband við ritstjorn@visir.is.