Íbúum í suðaustur Noregi brá í brún þegar jarðskjálfti af stærðinni 3,3 á Richter reið yfir klukkan 09:24:54 í morgun. Skjálftinn átti upptök sín rétt norðaustur af Osló, nálægt miðbæ Lillestrøm og fannst vel á stóru svæði.
Fólk sem var statt í húsnæði NRK í Marienlyst í Osló lýsa skjálftanum sem miklum dynk og hristing í tæplega tíu sekúntur.
Grunnir jarðskjálftar verða ekki oft á þéttbýlissvæðum í Noregi, þeir verða oftast dýpra í jörðu, á 10-20 km dýpi, og finnst því ekki eins glögglega. Samkvæmt bráðabirgðamælingum virðist þessi skjálfti hafa verið á 5-10 km dýpi.
Lögreglan í Osló greindi frá því að verið sé að kanna hvort skemmdir hafi orðið vegna skjálftans en engar slíkar tilkynningar hafa borist enn.
Unnið er að því að greina skjálftann.