Já eða Nei: Báðar hliðar gera grein fyrir máli sínu

Já eða Nei: Báðar hliðar gera grein fyrir máli sínu

Já eða Nei: Báðar hliðar gera grein fyrir máli sínu

Við þökkum ykkur fyrir samfylgdina í kvöld þar sem við fylgdumst með umræðum í beinni útsendingu um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þjóðin velur hvort hefja eigi aðildarviðræður við ESB á ný eða ekki.

Dreifing umræðutíma var mjög jöfn í þættinum. 19 sekúndum munaði á já og nei hliðinni eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.

Lokaspurningin er: Hvað ættu kjósendur að hafa í huga þegar þeir fara inn í kjörklefann á laugardaginn?

Heyra má svör allra í klippunni hér fyrir neðan.

Guðrún undirstrikar að öryggi Íslands liggi í því að vera í NATO og í tvíhliða varnarsamningi við Bandaríkin.

Hún segir engin teikn á lofti um að Bandaríkin eða NATO ætli að bregðast þeim samningum.

Kristrún er spurð hverju það myndi breyta fyrir varnir Íslands að ganga í ESB, sérstaklega með það í huga að sambandið sé ekki hernaðarsamband.

Hún segir miklar vendingar í alþjóðamálum. Hún nefnir stríð í Úkraínu, efnahagslegar þvinganir og þrýsting á NATO-þjóðir að efla útgjöld sín.

Hún segir Ísland oft hafa siglt eftir vindum en að nú sé tækifæri fyrir Ísland að horfa í kringum sig.

Hún segir þó mikilvægt að þjóðin heyri það frá henni að atkvæðagreiðslan snúist ekki um val á milli Evrópu og Bandaríkjanna.

Hún segir ákveðnar hættur á að Ísland klemmist á milli viðskiptastríða. Hún segir stóra blokk líkt og ESB geta komið í veg fyrir að tollar falli á smáþjóð eins og Ísland.

Þátttakendur eru spurðir hversu miklu samtök þeirra hafa eytt í auglýsingar.

Hjálmar segist ekki vera með nákvæma tölu fyrir SJÁ samtökin en það séu um 70 til 80 milljónir króna.

Halldór Benjamín segir að Áfram Ísland hafi eytt svipað miklu og Samfylkingin gerði fyrir síðustu Alþingiskosningar sem hafi verið um 90 milljónir.

Hjálmar segir að regluverkin sem Halldór hafi nefnt séu þegar í gildi í gegnum EES.

Umræðan snýr að orkumálum. Áhyggjur hafa verið af því að Ísland missi stjórn á orkuauðlindum sínum gangi það í Evrópusambandið. Evrópuréttur kveði hins vegar skýrt á um að hvert og eitt land ráði yfir sínum auðlindum.

Halldór Benjamín segist ekki óttast þetta. Það hjálpi Íslandi að það sé eyja og sé ekki tengt inn á Evrópunetið.

„Hins vegar er alveg ljóst að orkustefna Evrópusambandsins er með tvö meginmarkmið,“ segir Halldór. Þau séu að draga úr orkunotkun og að stuðla að samþættingu raforkunetsins í Evrópu. Hann segir Svía hafa fengið að finna fyrir þessu þar sem þeir framleiði umframorku. Brussel hafi hins vegar sagst ætla að taka part af þeim hagnaði sem myndist til þess að byggja upp raforkuver í Suður-Evrópu.

„Við erum ekki á hlustunarfundi núna, ég ætla að fá að segja smá,“ segir Guðrún Hafstein til þess að grípa orðið þegar Kristrún reynir að komast að.

Hún segir að ríkisstjórnin hafi aldrei svarað því hvort varanlegar undanþágur séu möguleiki í sjávarútvegsmálum.

Hún segir Hjálmar hafa fullyrt að Íslandi standi til boða lausnir sem engum öðrum ríkjum hafi boðist. Guðrún segir Noreg hafa átt að fá aðlögun að sambandinu í 10 ár en að ekki hafi verið stefnt að varanlegum undanþágum frá fiskveiðistefnu sambandsins.

Hjálmar segir einfaldlega að Guðrún fari þarna með rangt mál.

„Aftur, hlustunarfundir eru búnir,“ segir Guðrún við því.

Sjávarauðlindir eru eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur sagt að byrja ætti á að ræða þær í mögulegum aðildarviðræðum.

Halldór Benjamín segir að það sama hafi verið sagt í síðustu aðildarviðræðum árið 2009, að byrja eigi á sjávarútvegsmálunum og svo hafi átt að fara í landbúnað.

Tvö og hálft ár hafi hins vegar liðið áður en sá kafli hafi verið opnaður. Hann segir algerlega nauðsynlegt fyrir Ísland að fá fullt forræði yfir sjávarútvegsauðlindinni.

Kristrún segist sammála Halldóri en nefnir að þjóðin eigi fiskinn í sjónum og að verðmætin eigi að renna til þjóðarinnar.

„Það liggur alveg fyrir að þessi ríkisstjórn er alveg jafn sammála Halldóri og aðrir hérna inni þegar kemur að því að fá fullt forræði yfir sjávarútvegsauðlindinni en það sem þetta snýst um er hvaða leið þú ferð að því markmiði,“ segir Kristrún.

Hún segir að gengið verði frá borðinu hratt ef það verði ekki mögulegt.

Mikið hefur verið tekist á um hvort aðild að Evrópusambandinu hafi slæm áhrif á landbúnað á Íslandi.

Magnús Árni segir grundvallaratriði að Evrópusambandið verji hvað mestu af sínum kröftum í að styrkja evrópskan landbúnað.

„Eitt megingrundvallaratriðið í landbúnaðarstefnu ESB er fæðuöryggi,“ segir hann. Þá njóti dreifðar og fámennari byggðir mikils stuðnings. Því séu það hagsmunir íslenskra bænda að sagt verði já.

Sólveig Anna segist ekki mikill sérfræðingur í landbúnaðarmálum.

„En ég vil þegar verka- og láglaunafólk talar og þess vegna hlusta ég þegar íslenskir bændur tala,“ segir hún.

Það að bændaþing segist mótfallið Evrópusambandinu sé nokkuð sem mikilvægt sé að hlusta á. Halldór Benjamín tekur undir þetta og segir mikla andstöðu innan bændastéttarinnar gegn Evrópusambandinu.

Hjálmar kemur inn á að á þeim tíma sem Guðrún nefndi hafi verið gjaldeyrishöft. „Það er ekkert mál að vera með stöðugleika í gjaldeyrishöftum,“ segir hann. Þá nefnir hann einnig að tunnan af olíu hafi farið niður í 30 krónur á þessum tíma.

Guðrún telur krónuna ekki fullreynda. „Við höfum farið núna á rúmum 10 árum í gegnum mestu efnahagsáföll lýðveldistímans,“ segir hún.

Hún segir að góður árangur hafi náðst eftir hrun og að krónan hafi spilað þar stórt hlutverk.

Verðbólga hafi verið nálægt markmiðum Seðlabankans á árunum 2014 til 2020 fram að Covid.

Hún segir að íslenska hagkerfið sé hvað líkast norska hagkerfinu og nefnir að Norðmenn hafi ekki áhuga á því að ganga í ESB.

Sólveig segir að húsnæðismarkaðurinn sé stærsta ástæðan fyrir óróa á atvinnumarkaði. „Við þurfum ekki evru til þess að laga húsnæðismarkaðinn,“ segir hún.

Hún telur að ef tekið hefði verið til á húsnæðismarkaði á árunum 2018 og 2019 væri staðan önnur og nefnir þar til dæmis leigubremsu.

Kristrún segir það vissulega ekki skammtímalausn að taka upp evru. „Þetta er langtímaverkefni sem við getum tekist á hendur,“ segir hún og telur slíkt hafa vantað.

Hún segir vissulega skiptar skoðanir á evrunni og Evrópusambandinu.

„En við skulum ekki láta þannig að fljótandi gengi krónunnar og sveiflur hennar hafi alltaf verið okkur til góðs,“ segir hún.

„Hver er ástæðan fyrir því að það hefur verið órói á vinnumarkaði meira og minna síðan í hruni? Það er vegna þess að verðbólga skaust upp á þeim tíma, verðtryggðu lánin ruku upp og eigið fé húsnæðis fór niður fyrir núll sem gerði það að verkum að hér voru stórskuldugar fjölskyldur sem voru í sárum í mörg ár á eftir,“ segir hún.

Hún segist treysta sér til að vinna að góðu ástandi án evru en að þjóðin eigi skilið að skoða valkostinn að ganga í ESB.

Halldór Benjamín segist sakna kaupmáttarferils þegar sýnd var mynd af þróun verðbólgu og vaxta.

Hann segir að kaupmáttur á Íslandi hafi til dæmis vaxið tvöfalt hraðar en í Danmörku frá því Danmörk fór inn í Evrópusambandið.

„Frá inngöngu Svía hefur kaupmáttur vaxið fjórfalt hraðar en í Svíþjóð,“ segir Halldór Benjamín.

Áhrif mögulegrar aðildar að ESB eru næst til umræðu. Verðbólga er 5,6% og forsendur kjarasamninga eru brostnar. Þá eru stýrivextir 8%.

Spurningin er: Er fullreynt að halda úti litlu hagkerfi með sjálfstæðri mynt?

Sólveig Anna telur það ekki fullreynt, við séum lítið hagkerfi og auðlindadrifið.

„Staðreyndin er sú að vegna þess að við erum með þetta sveiflukennda, auðlindadrifna hagkerfi þá þurfum við krónuna til þess að milda áföllin,“ segir hún.

Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, telur að aðild væri tækifæri til að brjótast út úr núverandi ástandi.

„Að tala um að það sé ekki fullreynt með krónuna eftir 100 ár af þessari íslensku krónu sem hefur tapað 99,9% verðgildis síns síðan hún var sett á laggirnar upp úr 1920,“ segir Magnús.

Halldór Benjamín svarar þessu. „Við höfum heyrt þennan söng svo mánuðum skiptir,“ segir Halldór Benjamín. Hann segir að það sem af er árinu 2026 hafi verið rétt rúmlega 2000 ESB reglugerðir. 400 hafi verið teknar inn í EES.

Hann segir einnig að orð Kristrúnar um að aðlögunarviðræður tækju ekki alla athygli ríkisstjórnarinnar væru ekki endilega sönn.

Hann nefnir sem dæmi Steingrím J. Sigfússon, fyrrum þingmann, og að hann hafi sagt stöðu Stjórnarráðsins hafa verið erfiða í síðustu viðræðum.

„Stjórnarráðið var að drukkna í vinnu,“ segir Halldór að Steingrímur hafi sagt.

Hjálmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri SJÁ samtakanna, segir að ein reglugerð hafi verið samþykkt á dag frá 1994. Við höfum ekki hafnað neinni, segir hann.

Hann nefnir sem dæmi að Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi utanríkisráðherra, hafi ekki munað þegar hann innleiddi ETS-regluverkið í íslenskan rétt.

„Við erum reglutakar og við erum þegar komin inn 75% í sameiginlegt regluverk,“ segir hann.

Guðrún er spurð hvort ekki sé hægt að treysta orðum Kristrúnar og ríkisstjórnarinnar um að ekki verði nauðsynlegt að breyta lögum í ferlinu. Þetta hafi stækkunarstjóri ESB einnig sagt.

„Ég get ekki verið sammála því að stækkunarstjóri ESB hafi verið skýr hvað þetta varðar, hún hefur nefnilega verið tvísaga,“ segir Guðrún sem tekur fram að Marta Kos, stækkunarstjóri ESB, hafi sagt í mars að Ísland þurfi að aðlaga regluverk sitt. Hún hafi þó talað öðruvísi um liðna helgi.

„Við þurfum að innleiða 95% af regluverkinu algjörlega eins og það er,“ segir Guðrún.

Kristrún segir að niðurstaðan verði virt og segir að það komi til greina að aðildarumsókn Íslands verði dregin til baka ef svarið er nei á laugardaginn.

„Fyrsta skrefið verður að ráðfæra okkur við utanríkismálanefnd þingsins, það var ekki gert á sínum tíma, þegar aðildarviðræður voru stöðvaðar. Ef það verður niðurstaða þingsins, nefndarinnar í samvinnu við þingið, að það sé eðlilegt að draga umsóknina til baka þá er það gott og vel,“ segir Kristrún.

Kristrún segir að kjósendur eigi ekki að hafa áhyggjur af því að allt púður ríkisstjórnarinnar verði sett í aðildarviðræður en að önnur málefni mæti afgangi.

„Vissulega mun þetta taka einhverja orku, eðli málsins samkvæmt,“ segir hún.

Sérsamninganefndir muni fara í aðildarviðræðurnar.

„Við vitum ekki hvort við göngum inn í Evrópusambandið þó að það verði sagt já á laugardaginn, segir Kristrún sem tekur fram að meðal annars verði að passa upp á EES samninginn.

„Við erum líka í þeirri stöðu að þurfa að passa upp á okkar innanlandsfjármál,“ segir Kristrún þar sem jafnvægi þurfi að vera í vinnumarkaðsmálum og fjárlög þurfi að vera hallalaus.

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins vill taka það skýrt fram að hvorki hún né einhver úr Sjálfstæðisflokknum hafi beitt sér fyrir því að þjóðin fái ekki að velja. Hún segist þó ekki treysta ríkisstjórninni fyrir vegferðinni.

„Við erum ekki að kjósa um hvort Ísland eigi að eiga gott samstarf við Evrópu, við eigum það nú þegar og við viljum eiga það áfram,“ segir hún.

„Við erum að kjósa um það að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið sem hafa það lokatakmark að ganga inn í ESB.“

Hún telur að þar með sé þjóðin að kjósa á laugardaginn um það hvort þjóðin vilji færa ákvörðunarvald um auðlindir, landbúnað og sjávarútveg til Brussel.

„Endanlegar ákvörðunartökur eiga að vera teknar hér á Íslandi,“ segir Guðrún.

„Ég held að það skipti mjög miklu máli að þetta er eitt mesta áhættuminnkandi skref sem við getum tekið,“ segir Kristrún sem bendir aftur á að Ísland sé þegar að miklu leyti inni í Evrópusambandinu í gegnum EES.

„Við stöndum hins vegar utan tollabandalags,“ segir hún og bendir á að breyttar venjur séu í alþjóðamálum og því sé spurning hvort Ísland eigi að vera í meira samfloti með stærri þjóðum.

„Við erum að horfa upp á það í kringum okkur að lönd í kringum okkur hafa verið varin af Evrópusambandinu.“

„Ég tel að við stöndum frammi fyrir tækifæri til þess að stórbæta lífskjör hér á Íslandi til þess að efla grundvöll undir atvinnurekstur og komast út úr þessari verðbólguvél sem smæsti gjaldmiðill í heiminum er,“ segir Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar.

„Meginástæða þess að ég ætla að segja nei á laugardaginn er sú að þegar ég horfi á Ísland og íslenskt samfélag þá sé ég eitthvað sem er einstakt í heiminum,“ segir Sólveig Anna. Hún segir að vinnumarkaðsmódelið á Íslandi sé einstakt.

Við erum með hæstu stéttarfélagsaðild á byggðu bóli, segir hún. Mikil lýðræðisleg réttindi séu á Íslandi en í Evrópu sé önnur staða. Stéttarfélagsaðild sé mun minni en hér.

Það er Hjálmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri SJÁ samtakanna, sem byrjar. Hann segir mikilvægustu. Hann segir að við höfum verið í nánu sambandi við Evrópusambandið frá 1944 og að við séum komin langt inn í regluverkið.

Mikilvægast sé að kanna samstarfið. „Það er meira að sækja í samstarfið að mínu mati,“ segir hann og undirstrikar gjaldmiðlamál

Halldór Benjamín, einn af stofnendum Áfram Ísland, telur hins vegar lítið að sækja en mikið til að verja. Hann spyr hverjir séu bestir til þess að verja íslenska hagsmuni og telur það vera Íslendinga.

Við búumst við líflegum umræðum í kvöld þar sem gestir þáttarins eru ekki af verri endanum.

Fyrir já-hliðina eru:

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra.

Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar.

Hjálmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri SJÁ samtakanna.

Fyrir nei-hliðina eru:

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins.

Halldór Benjamín, einn af stofnendum Áfram Ísland.

og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

Góða kvöldið.

Verið velkomin á fréttavakt þar sem við fylgjumst með umræðum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst þar sem Íslendingar velja hvort þeir vilja hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný eða ekki.

Ég heiti Ragnar Jón Hrólfsson og með mér er Guðmundur Atli Hlynsson og erum við báðir fréttamenn RÚV.

Þátturinn hefst 19:45.

#báðar #eða #gera #hliðar #nei


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-27-ja-eda-nei-badar-hlidar-gera-grein-fyrir-mali-sinu-485079

📰 Aðrar fréttir

Inga Lind selur miðborgarperluna
📅 13.10.2026 👁️ 1
Inga Lind selur miðborgarperluna
Inga Lind Karlsdóttir, ein eigenda Skot Productions, hefur sett einbýlishús sitt við Barónsstíg 16 í miðborginni á sölu. Eignin er 155,1 fm að stærð b...
Fyrsti alvöru hvellur vetrarins framundan – Þetta þurfa landsmenn að hafa í huga
📅 13.10.2026 👁️ 1
Fyrsti alvöru hvellur vetrarins framundan – Þetta þurfa landsmenn að hafa í huga
Fyrsti óveðurshvellur vetrarins er í uppsiglingu en eins og kunnugt er hefur Veðurstofa Íslands gefið út gular og appelsínugular viðvaranir fyrir stór...
Emergency calls from botched Christa Pike execution released to US media
📅 13.10.2026 👁️ 0
Emergency calls from botched Christa Pike execution released to US media
A series of calls, obtained by the Associated Press, reveal emergency services were delayed in reaching Pike.
Há­skólarnir verði betur tengdir með breyttri strætó­leið - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 0
Há­skólarnir verði betur tengdir með breyttri strætó­leið - Vísir
Leið 8 mun samkvæmt tilkynningu framvegis hafa viðkomu við Háskóla Íslands, Lækjartorg og Skúlagötu auk Háskólans í Reykjavík og Gömlu Hringbrautar lí...
Bjarni yfir 10 prósentin í Skaga
📅 13.10.2026 👁️ 0
Bjarni yfir 10 prósentin í Skaga
Sjávarsýn, eignarhaldsfélag Bjarna Ármannssonar, er orðið eigandi að meira en tíu prósenta hlut í Skaga hf. eftir að hafa aukið hlutafjáreign sína í g...
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind
📅 13.10.2026 👁️ 0
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind Donald Trump stimplar þá sem óvini sem halda áfram að nota hug­takið gervi­greind en ekki „ofur­greind“...
Scientists are analysing coastal litter to identify its sources and protect our beaches and wildlife
📅 13.10.2026 👁️ 0
Scientists are analysing coastal litter to identify its sources and protect our beaches and wildlife
Scientists are investigating the origins of rubbish found on 30 beaches across the Canary Islands as part of a European environmental research project...
Biðja fólk um að huga að veðri og flýta eða seinka ferðalögum
📅 13.10.2026 👁️ 0
Biðja fólk um að huga að veðri og flýta eða seinka ferðalögum
Lögregluembættin á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra hafa sent frá sér tilmæli til vegfarenda fyrir óveðrið sem er að vænta á morgun. Appelsínugular v...
Þurftu að kyrr­setja flug­vél vegna veggjalúsa - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 0
Þurftu að kyrr­setja flug­vél vegna veggjalúsa - Vísir
Veggjalýsnar fundust fremst á almennu farrými vélarinnar í flugi Qantas þann 9. október en þetta kemur fram í frétt Guardian um málið. Taka þurfti vél...
Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum - Vísir
Eftir að Nóbelsnefndin tilkynnti á fimmtudaginn að Anne Carson hefði hlotið bókmenntaverðlaunin þaut menningarblaðamaður Vísis vestur á Ægisíðu í von ...
Canary Islands Football Nights: Following AFCON's November qualifiers across time zones
📅 13.10.2026 👁️ 2
Canary Islands Football Nights: Following AFCON's November qualifiers across time zones
November's AFCON qualifiers fall after the Canary Islands return to winter time, keeping the islands an hour behind mainland Spain. A fixture advertis...
Lognið fyrir storminn
📅 13.10.2026 👁️ 2
Lognið fyrir storminn
Landsmenn geta átt von á hægum vindi en nokkurri rigningu í dag. Íbúar á Norður- og Austurlandi þurfa þó að bíða fram yfir hádegi áður en blotnar eitt...
Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða - Vísir
Gular og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir morgundaginn, en gert er ráð fyrir komu mjög djúprar lægðar sem á að ganga yfir lan...
Úkraínskt skip sökk í drónaárás
📅 13.10.2026 👁️ 2
Úkraínskt skip sökk í drónaárás
Úkraínskt skip sökk í drónaárás í morgun þegar árásir voru gerða á tvö úkraínsk skip í Svartahafi.Rumen Radev forsætisráðherra Búlgaríu greindi frá þe...
New bus routes in Adeje carry over 10,000 passengers in just five weeks
📅 13.10.2026 👁️ 2
New bus routes in Adeje carry over 10,000 passengers in just five weeks
Two new municipal bus routes in Adeje have recorded more than 10,000 passenger journeys in their first five weeks of operation, with the service conne...
Mótmælanda hent út af Trump samkomu meðan forsetinn kallaði hann feitan og sagði hann þurfa í megrun
📅 13.10.2026 👁️ 2
Mótmælanda hent út af Trump samkomu meðan forsetinn kallaði hann feitan og sagði hann þurfa í megrun
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði mótmælanda feitan og sagði hann þurfa að fara í megrun þegar lögreglumenn fylgdu viðkomandi út af samkomu forse...
Hafa gert á­rásir á sex orku­mann­virki eftir yfir­lýsingu Trump - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Hafa gert á­rásir á sex orku­mann­virki eftir yfir­lýsingu Trump - Vísir
Að sögn Selenskí hafa bensínstöðvar, orkuinnviðir og fleiri mannvirki orðið fyrir árásum og alls hafa 30 slasast. Í viðtali við Fox News segir hann að...
TUESDAY WEATHER: Sunshine and temperatures up to 28°C in the Canary Islands today
📅 13.10.2026 👁️ 2
TUESDAY WEATHER: Sunshine and temperatures up to 28°C in the Canary Islands today
The Canary Islands can look forward to another day of pleasantly warm October temperatures today, Tuesday, with sunny intervals across much of the arc...
Carney hvetur til samstöðu viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta
📅 13.10.2026 👁️ 3
Carney hvetur til samstöðu viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta
Alberta er fjórða stærsta fylki Kanada og þar búa um fimm milljónir íbúa. Skoðanakannanir benda til þess að aðeins um fjórðungur íbúa Alberta vilji fu...
Russia's offensive ability is broken, Kyiv's former top general tells BBC
📅 13.10.2026 👁️ 4
Russia's offensive ability is broken, Kyiv's former top general tells BBC
In his first interview since being forced from his post, Gen Syrskyi speaks about Ukraine's future in the war.
Segja árásir á gagnaver hafa þaggað niður í rússneskum áróðursbottum
📅 13.10.2026 👁️ 4
Segja árásir á gagnaver hafa þaggað niður í rússneskum áróðursbottum
Nokkrir bandamenn Úkraínu og netnotendur segja að snarlega hafi dregið úr rússneskum áróðri og upplýsingaóreiðu á netinu. Ástæðan er sögð nýlegar árás...
BBC's Orla Guerin travels with Yemen's southern national security forces through desert battlefield
📅 13.10.2026 👁️ 2
BBC's Orla Guerin travels with Yemen's southern national security forces through desert battlefield
Orla Guerin travelled through Yemen, with forces loyal to its internationally recognised government, to a remote desert battlefield where Houthi rebel...
Karlmaður lést við fall úr rússíbana
📅 13.10.2026 👁️ 5
Karlmaður lést við fall úr rússíbana
Karlmaður lést og nokkrir slösuðust eftir rússíbanaslys í skemmtigarði Six Flags í Georgíu í Bandaríkjunum í gær.CNN segir að maðurinn hafi látist þeg...
Hútar vara Bandaríkin við að veita Sádi-Aröbum hernaðarlegan stuðning
📅 13.10.2026 👁️ 5
Hútar vara Bandaríkin við að veita Sádi-Aröbum hernaðarlegan stuðning
Hútar hafa varað Bandaríkjastjórn við því að blanda sér inn í stríðsátökin milli Húta og Sádi-Arabíu. Mohammed Al Bukhaiti, háttsettur maður í skæruli...
UK growth upgraded but energy prices and rates to bite in 2027
📅 13.10.2026 👁️ 4
UK growth upgraded but energy prices and rates to bite in 2027
The IMF report comes as final preparations are being made to the first Budget under Prime Minister Andy Burham.
UK growth forecast upgraded but energy prices and rates to hit in 2027
📅 13.10.2026 👁️ 2
UK growth forecast upgraded but energy prices and rates to hit in 2027
The prediction from the IMF comes as final preparations are being made to the first Budget under Prime Minister Andy Burham.
Why the Prime Minister wants to talk about Brexit again
📅 13.10.2026 👁️ 4
Why the Prime Minister wants to talk about Brexit again
For the first time since the UK left the EU, we have a prime minister who will "unflinchingly" debate Brexit, says the BBC's political editor Chris Ma...
Hundreds more prisoners to be freed in second phase of early release scheme
📅 13.10.2026 👁️ 5
Hundreds more prisoners to be freed in second phase of early release scheme
Second tranche of prisoners will include those serving up to two and a half years for crimes.
Leggur til að Ísland skapi sér sérstöðu á sviði gervigreindar
📅 13.10.2026 👁️ 5
Leggur til að Ísland skapi sér sérstöðu á sviði gervigreindar
Halla Tómasdóttir forseti Íslands hefur verið í alþjóðlegri nefnd um gervigreind síðan í sumar. Hún segir markmið nefndarinnar að ræða hvernig hægt sé...
Jarþrúður Ásmundsdóttir nýr formaður Jafnréttissjóðs
📅 13.10.2026 👁️ 4
Jarþrúður Ásmundsdóttir nýr formaður Jafnréttissjóðs
Jarþrúður Ásmundsdóttir verður formaður Jafnréttissjóðs Íslands að skipan Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Á vef Stjórnarráðsins segir ...
Hvetur nöfnu sína til að fletta Gest­gjafanum - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 5
Hvetur nöfnu sína til að fletta Gest­gjafanum - Vísir
Tilefni innsendu greinarinnar er viðtal þar sem rætt var við formann Blaðamannafélags Íslands í einum þátta blaðamannsins Jakobs Bjarnars á Vísi sem b...
„Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 5
„Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ - Vísir
Tilefni innsendu greinarinnar er viðtal þar sem rætt var við formann Blaðamannafélags Íslands í einum þátta blaðamannsins Jakobs Bjarnars á Vísi sem b...
Publicly owned rail is popular. But is it making the trains run on time?
📅 12.10.2026 👁️ 4
Publicly owned rail is popular. But is it making the trains run on time?
Meeting travellers' expectations could be challenging, experts warn.
One dead, several others hurt on Six Flags rollercoaster in Georgia
📅 12.10.2026 👁️ 4
One dead, several others hurt on Six Flags rollercoaster in Georgia
Aerial footage at the park after the incident shows a stuck rollercoaster with riders being helped off.
Heating oil customers face tough winter despite shake-up promise
📅 12.10.2026 👁️ 4
Heating oil customers face tough winter despite shake-up promise
Heating oil customers facing soaring bills are promised better regulation of the sector by the government.
Spæjari, klámstjarna og þingkona - Ótrúlegur ferill konunnar sem elskar að vera ögrandi
📅 12.10.2026 👁️ 4
Spæjari, klámstjarna og þingkona - Ótrúlegur ferill konunnar sem elskar að vera ögrandi
Þegar hin ungverska Ilona Staller gekk upp að altarinu aðeins tvítug að aldri árið 1971 lýsti presturinn henni sem sorgmæddustu brúði sem hann hefði n...
Breaking Bad-stjarna látin aðeins 34 ára að aldri
📅 12.10.2026 👁️ 4
Breaking Bad-stjarna látin aðeins 34 ára að aldri
Leikarinn RJ Mitte er látinn, 34 ára að aldri, en hann sló í gegn í verðlaunaþáttunum Breaking Bad þar sem hann fór með hlutverk Walter 'Flynn' White ...
Er bókun 35 tækniútfærsla eða varðar hún við stjórnarskrána?
📅 12.10.2026 👁️ 4
Er bókun 35 tækniútfærsla eða varðar hún við stjórnarskrána?
Tekist er á um bókun 35 á Alþingi þessa dagana og hefur mikið verið rætt hvort hún sé í tæknileg útfærsla eða hvort hún varði við stjórnskrá Íslands. ...
Á­kveðið á­lag sem maður sé undir án þess að fatta það - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Á­kveðið á­lag sem maður sé undir án þess að fatta það - Vísir
Var þetta meðal þess sem snert var á í dag þar sem Rósa var gestur í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni. Hún sagðist fyrst hafa kynnst tækninni í heimsókn...
Sonur Walter White er látinn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Sonur Walter White er látinn - Vísir
Kemur þetta meðal annars fram í umfjöllun TMZ um andlátið en RJ lést í heimabæ sínum, Brownsville, í Texas-fylki í Bandaríkjunum. Þá standi rannsókn á...
RJ Mitte er látinn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
RJ Mitte er látinn - Vísir
Kemur þetta meðal annars fram í umfjöllun TMZ um andlátið en RJ lést í heimabæ sínum, Brownsville, í Texas-fylki í Bandaríkjunum. Þá standi rannsókn á...
Telur ólíklegt að vopnahlé Trumps hafi verið raunverulegt
📅 12.10.2026 👁️ 4
Telur ólíklegt að vopnahlé Trumps hafi verið raunverulegt
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir ólíklegt að vopnahlé á milli Rússa og Úkraínumanna, sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti u...
„Kjarnorkuvopnaógn meiri en frá tímum kalda stríðsins“
📅 12.10.2026 👁️ 4
„Kjarnorkuvopnaógn meiri en frá tímum kalda stríðsins“
Kjarnorkuógn hefur ekki verið meiri síðan á hátindi kalda stríðsins, að sögn Izumi Nakamitsu, framkvæmdastjóra afvopnunarmála hjá Sameinuðu þjóðunum. ...
Breaking Bad actor RJ Mitte dies aged 34
📅 12.10.2026 👁️ 4
Breaking Bad actor RJ Mitte dies aged 34
Mitte, who lived with cerebral palsy, drew on his own experience for his role in the Emmy-winning drama series.
RJ Mitte: Breaking Bad actor dies aged 34
📅 12.10.2026 👁️ 0
RJ Mitte: Breaking Bad actor dies aged 34
Mitte, who lived with cerebral palsy, starred as Walter White Jr in the Emmy-winning drama series.
Lætur nöfnu sína heyra það vegna ummæla hennar um Gestgjafann - „Tímasetningin gerir þetta verra“
📅 12.10.2026 👁️ 4
Lætur nöfnu sína heyra það vegna ummæla hennar um Gestgjafann - „Tímasetningin gerir þetta verra“
Staða hlaðvarpa á Íslandi hefur mikið verið til umræðu undanfarið eftir að Fjölmiðlanefnd skoraði á nokkur vinsælustu hlaðvörp landsins að skrá sig fo...
Legally Blonde-stjarna hand­tekin sökuð um að hafa bitið flug­freyju - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Legally Blonde-stjarna hand­tekin sökuð um að hafa bitið flug­freyju - Vísir
Er það bandaríski miðillinn TMZ sem greinir frá en þar segir að Selma Blair hafi verið um borð í vél flugfélagsins Delta Airlines á leið til John F. K...
Uppsagnir í hverjum mánuði
📅 12.10.2026 👁️ 4
Uppsagnir í hverjum mánuði
Verulega hefur hægt á í byggingariðnaði undanfarið og íbúðum í byggingu fækkað líkt og Spegillinn hefur fjallað um. Hátt í 1.900 nýjar íbúðir eru tilb...
Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánar­tíðni sjúk­linga - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánar­tíðni sjúk­linga - Vísir
Helga Rósa Másdóttir formaður FÍS skrifar meðal annars um það í greininni að undirmannaðar deildir geti haft mikið að segja um öryggi sjúklinga og afd...
Why Moscow is staying tight-lipped on Trump's energy ceasefire
📅 12.10.2026 👁️ 4
Why Moscow is staying tight-lipped on Trump's energy ceasefire
While Ukraine's Volodymyr Zelensky suggests he would sign up to a ceasefire on energy infrastructure, Russia has said little.